Spurning
Ísbirnir eru af bjarnarætt en hver er ættkvísl þeirra?
Spyrjandi
Atli Freyr, f. 1987
Svar
Rétt er það hjá spyrjandanum að ísbirnir (Ursus maritimus) eru af ætt bjarndýra (Ursidae) sem er ein af ellefu ættum innan ættbálks rándýra (Carnivora). Ættkvíslin er, eins og sést á fræðiheitinu hér að ofan, Ursus. Fimm aðrar tegundir bjarndýra tilheyra þessari sömu ættkvísl. Þær eru skógarbjörninn (Ursus arctos), ameríski svartbjörninn (Ursus americanus), asíski svartbjörninn (Ursus thibetanus), sólarbjörninn (Ursus malayanus) og varabjörninn (eða letibjörninn, Ursus ursinus).
Nokkrir aðskildir stofnar ísbjarna eru þekktir en líffræðingar hafa hingað til ekki haft neinar forsendur til að skipta tegundinni niður í deilitegundir. Sennilega eiga þessir aðskildu stofnar í tímans rás eftir að aðgreinast frekar í útliti svo að forsendur verði fyrir því að greina þá í sundur. Að stofnarnir séu ekki ólíkari en þetta er að öllum líkindum merki um það hversu ung tegund ísbjörninn er. Talið er að tegundin hafi komið fram fyrir minna en 100 þúsund árum síðan og þróast út frá skógarbjörnum sem aðlöguðust lífi á norðurheimskautinu.
Heimildir, lesefni og mynd:
- Enchantedlearning.com
- Lioncrusher's Domain: Animal Information Pages
- Heimasíða Larry O. Millers
- Páll Hersteinsson, "Spendýr á norðurslóðum". Hjá Þorsteini Vilhjálmssyni (ritstj.), Undur veraldar: Greinasafn um raunvísindi fyrir almenning. Reykjavík: Heimskringla, 1998. Bls. 89-106.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur3.6.2003
Flokkun:
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Ísbirnir eru af bjarnarætt en hver er ættkvísl þeirra?“. Vísindavefurinn 3.6.2003. http://visindavefur.is/?id=3475. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur





