Mesta fjarlægð Plútós frá jörðu er um það bil 7530 milljón kílómetrar en þegar Plútó er næst jörðu er fjarlægðin um það bil 4290 milljón kílómetrar. Ef við ætluðum okkur að fljúga með flugvél til Plútó væri þægilegast að flúgja með Concorde-þotu sem er hraðskreiðasta farþegaþota heims. Eðlilegur flughraði hennar er nálægt tvöföldum hljóðhraða, eða 2.150 kílómetrar á klst. Ef að við miðum við minnstu fjarlægð jörðu frá Plútó, værum við því um það bil 1.995.348 klst á leiðinni, eða 227 ár og 284 daga að fljúga með Concorde-þotu til Plútó frá jörðu. Kannski vill spyrjandinn vita hversu lengi geimflaug væri á leiðinni. Geimskutla ætti að geta náð sporbaugshraða sem er um 27.360 km/klst. Þá tæki flugið rúmar 156.798 klst eða um 17 ár og 328 daga. Heimildir og mynd:
- Svar Ingunnar Gunnarsdóttur á Vísindavefnum við spurningunni Hvað tekur margar mínútur að fara til Úranusar?
- The Marketing Den
Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.