Spurning

Hver fann upp sígarettuna og hvenćr?

Spyrjandi

Bjarni Barkarson, Ţórhildur Sunna Jóhannsdóttir, Ásbjörn Ţorsteinsson, f. 1994, o.fl.

Svar

Frumbyggjar í Ameríku ţekktu tóbakiđ löngu á undan Evrópubúum og notuđu ţađ til dćmis viđ helgiathafnir. Astekar reyktu til dćmis reyrstilka fyllta međ tóbaki, annars stađar voru tóbakslaufin kramin og ţeim rúllađ upp í hýđi af maís eđa öđrum jurtum áđur en ţau voru reykt. Laufin voru einnig tuggin. Á myndinni má sjá Astekakonur ţiggja blóm og „reykrör“ en myndin er frá 16. öld.

Evrópumenn kynntust fyrst tóbaki ţegar ţeir sigldu til Ameríku á 16. öld. Vindlar bárust til Evrópu međ Spánverjum og voru ţeir lúxusvarningur fyrir ríka fólkiđ. Ekki er hćgt ađ segja međ vissu hvenćr sígaretturnar urđu til en ein heimild rekur ţćr til betlara í Sevilla á Spáni snemma á 16. öld. Ţeir komust upp á lag međ ađ safna vindlastubbum, tćta ţá niđur og rúlla tóbakinu inn í pappír. Hugsanlega voru ţetta fyrstu sígaretturnar.

Sígarettur, eins og annađ tóbak, eru mjög skađlegar heilsu manna. Taliđ er ađ um 1,3 milljarđur manna reyki í heiminum og ađ árlega deyi um ţađ bil 4,9 milljónir manna af völdum sjúkdóma sem tengjast reykingum. Um ţetta má lesa meira í svari á Vísindavefnum viđ spurningunni: Hversu margir deyja árlega af völdum reykinga í heiminum?

Elsta heimild um orđiđ sígarettur á íslensku er frá miđbiki 19. aldar og er ađ finna í ritsafni Benedikts Gröndals.

Frekari fróđleikur á Vísindavefnum: Heimildir:
Fleiri spyrjendur:
Marinó Ingi Eyţórsson, Auđur Edda, Sigurlína Erla.

Ţetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiđum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuđi 2011.

Um ţessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur9.6.2011

Tilvísun

Brynjar Steinn Haraldsson, Geirmundur Ingi Eiríksson og Magnţór Breki Ragnarsson. „Hver fann upp sígarettuna og hvenćr?“. Vísindavefurinn 9.6.2011. http://visindavefur.is/?id=30892. (Skođađ 24.5.2013).

Höfundar

Brynjar Steinn Haraldssonnemandi í Háskóla unga fólksinsGeirmundur Ingi Eiríksson nemandi í Háskóla unga fólksinsMagnţór Breki Ragnarssonnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Nćsti )

Pólskur barnalćknir, kennslufrćđingur og barnabókahöfundur. Rak munađarleysingjahćli fyrir gyđingabörn í Varsjá og sýndi ţeim virđingu, en lét svo lífiđ ásamt ţeim.
Lesa meira...

Ađalstyrktarađili

Happdrćtti Háskólans