Spurning
Hvaða bílar eru hraðskreiðustu bílar heims, fyrir utan formúlubíla?
Spyrjandi
Gunnar Þorsteinsson
Svar
Hraðskreiðasti fjöldaframleiddi bíll síðastliðin tíu ár mun vera McLaren F1 sem sést hér að neðan. Vissulega má þó deila um hvað telst vera fjöldaframleiðsla, en einungis 100 bílar af þessari gerð voru framleiddir frá 1992 til 1998 þegar framleiðslu þeirra var hætt.
Bíllinn er með 12 strokka og 627 hestafla vél sem nær að koma bílnum á yfir 380 km hraða á klukkustund. Fjórir ventlar eru á hverjum strokk og slagrými vélarinnar er 6,1 lítri. Þá eru fjórir knastásar á vélinni.
Ekkert var til sparað þegar McLaren F1 var hannaður, til að mynda er gull notað til að leiða hita frá vélinni. Verð bílsins var enda hátt, um ein milljón dala eða yfir 80 milljónir króna. Þar sem einungis hundrað bílar voru framleiddir má búast við að verð á notuðum bílum af þessari gerð sé síst lægra en upphaflegt söluverð.
Frekara lesefni af Vîsindavefnum:
- Hver er hraðskreiðasti bíllinn sem leyfilegt er að aka í almennri umferð? [2010] eftir Hauk Hannesson
- Hvað kemst hraðskreiðasti bíll í heimi hratt og hvað heitir hann? eftir Kristján Bjarka Purkhús
- Hvaða ár urðu bílar til? eftir HMS
- Af hverju takast kappakstursbílar ekki á loft þegar þeir eru komnir á fulla ferð? eftir Þorstein Vilhjálmssson
- Hvað merkir hestafl og af hverju? eftir JGÞ
Heimildir og mynd:
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur20.11.2002
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Einar Örn Þorvaldsson. „Hvaða bílar eru hraðskreiðustu bílar heims, fyrir utan formúlubíla?“. Vísindavefurinn 20.11.2002. http://visindavefur.is/?id=2881. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
Einar Örn Þorvaldssonháskólanemi og starfsmaður Vísindavefsins




