Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaðan kemur orðið lestrarhestur?

Guðrún Kvaran

Orðið lestrarhestur er tökuorð úr dönsku læsehest og hefur verið notað að minnsta kosti frá því í upphafi 20. aldar. Í Danmörku var orðið áður fyrr talið fremur niðrandi um þann sem mikið liggur í bókum og samheiti við bogorm sem við þekkjum sem bókaormur.

Í nýjum orðabókum virðist læsehest í dönsku hafa fengið hlutlausari merkingu. Í dönsku er einnig talað um læsehaj 'lestrarhákarl', læsejærn 'lestrarjárn' og læseorm 'lestrarorm' en þessi orð hafa ekki borist hingað.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

20.11.2002

Spyrjandi

Jónas Sveinsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið lestrarhestur?“ Vísindavefurinn, 20. nóvember 2002. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2879.

Guðrún Kvaran. (2002, 20. nóvember). Hvaðan kemur orðið lestrarhestur? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2879

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið lestrarhestur?“ Vísindavefurinn. 20. nóv. 2002. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2879>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvaðan kemur orðið lestrarhestur?
Orðið lestrarhestur er tökuorð úr dönsku læsehest og hefur verið notað að minnsta kosti frá því í upphafi 20. aldar. Í Danmörku var orðið áður fyrr talið fremur niðrandi um þann sem mikið liggur í bókum og samheiti við bogorm sem við þekkjum sem bókaormur.

Í nýjum orðabókum virðist læsehest í dönsku hafa fengið hlutlausari merkingu. Í dönsku er einnig talað um læsehaj 'lestrarhákarl', læsejærn 'lestrarjárn' og læseorm 'lestrarorm' en þessi orð hafa ekki borist hingað....