Spurning
Ef eineggja tvíburarsystur eiga börn með eineggja tvíburabræðrum, verða börnin þá alveg eins?
Spyrjandi
Arna Ólafsdóttir, Harpa Eysteinsdóttir, Heiðrún Stefánsdóttir
Svar
Eineggja tvíburar eru eins erfðafræðilega því þeir fengu afrit af sömu genum frá föður og móður. En þegar þeir fara að mynda kynfrumur munu litningar og gen foreldranna raðast handahófskennt í kynfrumur þeirra. Menn hafa 23 litningapör þannig að litningarnir munu stokkast upp í mjög margar samsetningar í hverri kynfrumu. Nákvæm tala er 8.388.608 samsetningar (2 í 23 veldi) í hverri kynfrumu, sem sýnir hversu heppilegir litningar eru fyrir uppstokkun erfðaefnisins.
Að auki verður endurröðun (litningavíxl) innan litninga, sem eykur enn á fjölbreytileikann. Því er mjög ólíklegt að afkvæmi eineggja tvíburabræðra með eineggja tvíbura systrum verði erfðafræðilega eins.
Skyldleiki barnanna verður hins vegar meiri en gengur og gerist hjá einstaklingum í annarri kynslóð. Þau verða jafn skyld og venjuleg systkini.
Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
- Hvernig verða eineggja tvíburar til og af hverju gerist það? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur
- Eru eineggja tvíburar með nákvæmlega eins erfðaefni? eftir Guðmund Eggertsson
- Koma eineggja tvíburar eins út í faðernisprófi? eftir ÞV
- myLifetime.com. Sótt 24. 1. 2011.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur10.2.2011
Flokkun:
Efnisorð
erfðafræði tvíburar eineggja afkvæmi gen litningar litningavíxl
Tilvísun
Arnar Pálsson. „Ef eineggja tvíburarsystur eiga börn með eineggja tvíburabræðrum, verða börnin þá alveg eins?“. Vísindavefurinn 10.2.2011. http://visindavefur.is/?id=28472. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundur
Arnar Pálssonerfðafræðingur





