Spurning

Úr hverju er blóð?

Spyrjandi

Emma Ósk, f. 1990

Svar

Blóð samanstendur af vökva og frumum sem fljóta í vökvanum. Blóðvökvinn er rúmlega helmingur af rúmmáli blóðsins. Þetta er gulleitur vökvi sem er að mestu leyti vatn en inniheldur líka mörg mikilvæg efni svo sem sölt, fæðuefni, úrgangsefni og blóðvökvaprótín sem koma mikið við sögu við storkun blóðs.



Blóðfrumurnar sem fljóta í blóðvökvanum eru þrennskonar, rauðkorn, hvítkorn og blóðflögur. Við eðlilegar aðstæður mynda rauðkornin um 45% af blóðinu. Að meðaltali eru um 5 milljónir rauðkorna í hverjum rúmmillimetra (mm3) blóðs í heilbrigðum einstaklingi þó vissulega sé það breytilegt á milli einstaklinga. Rauðkorn lifa í um 4 mánuði og eyðast að því loknu. Til þess að viðhalda eðlilegum fjölda blóðkorna endurnýjast þau því stöðugt. Rauðkornin myndast í beinmerg og á hverri sekúndu myndast um 2,4 milljónir nýrra rauðkorna.

Meginhlutverk rauðkornanna er að flytja súrefni frá lungum til vefja og koltvíoxíð frá vefjum til lungna. Rauðkorn eru disklaga með dæld báðum megin. Lögunin gerir það að verkum að yfirborð þeirra verður mikið, en það eykur upptöku súrefnis. Rauðkornin hafa ekki kjarna og geta því ekki fjölgað sér með skiptingu. Þau eru fyllt blóðrauða sem hefur það hlutverk að flytja súrefni en gefur blóðinu jafnframt rauðan lit.

Aðalhlutverk hvítkorna er að vernda líkamann fyrir bakteríum og veirum. Ólíkt rauðkornunum eru hvítkornin með kjarna eins og flestar aðrar frumur. Hvítkornin eru mikið færri en rauðkornin, við eðlilegar aðstæður eru um 5.000-10.000 hvítkorn á hvern rúmmillimetra blóðs en við sýkingu fjölgar þeim verulega. Megingerðir hvítkorna eru átfrumur og ónæmisfrumur. Líftími hvítkornanna er allt frá nokkrum dögum upp í nokkra mánuði eftir gerð þeirra.

Blóðflögur eru örsmáar agnir sem fljóta um í blóðvökvanum og gegna mikilvægu hlutverki við storknun blóðs. Blóðflögur verða til við það að agnir kvarnast úr umfrymi sérstakra frumna í beinmerg sem kallast megakaryocytar. Líftími blóðflaga er 9-12 dagar.

Á vef Blóðbankans má lesa nánar um gerð blóðsins. Þar er líka krakkahorn með ýmsum upplýsingum um blóð og blóðgjöf fyrir börn og unglinga.

Aðrar heimildir:
www.kidshealth.org
The Way Things Work - Book of the Body. New York, Simon and Schuster, 1979.

Mynd: The University of New Mexico - The Department of Biology

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur16.9.2002

Tilvísun

EDS. „Úr hverju er blóð?“. Vísindavefurinn 16.9.2002. http://visindavefur.is/?id=2704. (Skoðað 24.5.2013).

Höfundur

EDSlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Næsti )

Pólskur barnalæknir, kennslufræðingur og barnabókahöfundur. Rak munaðarleysingjahæli fyrir gyðingabörn í Varsjá og sýndi þeim virðingu, en lét svo lífið ásamt þeim.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans