Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Eru til kvenkyns raðmorðingjar?

Helgi Gunnlaugsson

Afbrotafræðingar skilgreina raðmorðinga (e. serial killer) sem einstakling sem framið hefur þrjú manndráp eða fleiri í þremur eða fleiri aðgreindum skiptum. Til eru ólíkar tegundir raðmorðingja. Algengasta tegundin er sá sem haldinn er kvalalosta eða ofríki á háu stigi.

Aileen Wuornos myrti sjö karla og hlaut dauðdóm fyrir. Leikkonan Charlize Theron hlaut óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á Aileen í kvikmyndinni Monster árið 2003.

Kvenkyns raðmorðngjar eru til og hefur fjöldi þeirra verið metinn á bilinu 10-15 prósent allra raðmorðingja. Þekktar rannsóknir á kvenkynsraðmorðingjum eru rannsóknir Beleu Keeney og Kathleen Heide (1994) og Wade Myers, Erik Gooch og Reid Meloy (2005).

Niðurstöðurnar sýna mun á karlkyns og kvenkyns raðmorðingjum. Karlar hafa tilhneigingu til að beita mun meira ofbeldi en konur. Konur beita meira ginningum og eitrunum en beinu ofbeldi. Konurnar voru að jafnaði eldri en karlarnir og áttu við meiri vímuefnavanda að stríða en karlarnir. Konurnar þjáðust af margvíslegum andlegum sjúkdómum meðan karlarnir voru oftar skilgreindir með andfélagslegan persónuleikavanda.

Dæmigerður kvenkynsraðmorðingi er sá sem lokkar eða eitrar fyrir einhverjum sem hún þekkir. Æska þeirra er þyrnum stráð; einkennist af misnotkun og brotnum fjölskyldutengslum. Menntun þeirra er að jafnaði lakari en gengur og gerist og ef þær eru á vinnumarkaði stunda þær helst láglaunastörf. Þekkt dæmi af þessu tagi er mál Aileens Wuornos sem tekin var af lífi í BNA árið 2002 fyrir að myrða sjö karla. Hún var skilgreind með alvarlega siðblindu (e. psychopathic personality) sem stafaði að öllum líkindum af skelfilegri æsku sem einkenndist af ofbeldi, alkóhólisma, nauðgun, sifjaspjöllum og vændi.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Heimildir og mynd:

  • Keeney, Belea og Heide, Kathleen (1994). „Gender differences in serial murderers. A preliminary analysis“ Journal of Interpersonal Violence 9: 37-56.
  • Myers, Wade, Gooch, Erik og Meloy, Reid (2005). „The role of psychopathy and sexuality in a female serial killer“. Journal of Forensic Sciences 50: 652-658.
  • Mynd: The Biography Channel. Sótt 29. 4. 2009.

Upprunalega hljóðaði spurningin svona:

Af hverju eru þessi brjáluðu og "frægu" morðingjar eingöngu karlar? Eru engar konur sem hafa sett sitt mark í söguna sem "serial killer"?

Höfundur

Helgi Gunnlaugsson

prófessor í félagsfræði við HÍ

Útgáfudagur

4.5.2009

Spyrjandi

Þórfríður Soffía Haraldsdóttir

Tilvísun

Helgi Gunnlaugsson. „Eru til kvenkyns raðmorðingjar?“ Vísindavefurinn, 4. maí 2009. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=26435.

Helgi Gunnlaugsson. (2009, 4. maí). Eru til kvenkyns raðmorðingjar? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=26435

Helgi Gunnlaugsson. „Eru til kvenkyns raðmorðingjar?“ Vísindavefurinn. 4. maí. 2009. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=26435>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...