Spurning
Hvað er mannfræði og hvað hafa mannfræðingar rannsakað á Íslandi?
Spyrjandi
Íris Pétursdóttir, f. 1986
Svar
Mannfræði kallast sú fræðigrein sem fjallar um manninn sem lífveru og sem félagsveru. Allt sem viðkemur lífi mannsins er hægt að flokka undir mannfræði. Mannfræði sem fræðigrein skiptist í tvö meginsvið annars vegar félags-og menningarmannfræði og hins vegar líffræðilega mannfræði.Í félagslegri- og menningarmannfræði rannsaka mannfræðingar menningu manna í víðasta skilningi þess hugtaks. Á meðal þess sem fjallað er um er skipan samfélaga almennt, sifjatengsl, stjórnskipan og hagskipan en einnig trúarbrögð, frásagnir af ýmsum toga, rituöl og listir. Að auki hafa mannfræðingar í síauknum mæli sýnt vistfræðilegri verund mannsins áhuga.
Mannfræðingar sem leggja stund á líffræðilega mannfræði rannska uppruna manna, líkamseinkenni mismunandi mannhópa og skyldleika þeirra við aðrar dýrategundir. Þeir rannsaka meðal annars forsögu mannsins, frummennina og þróun tegundarinnar Homo.
Mannfræðingar gera svokallaðar vettvangsathuganir. Þá dveljast þeir í tilteknu menningarsamfélagi og kynna sér eftir megni lifnaðarhætti og viðhorf þess fólks sem í samfélaginu býr. Niðurstöður þessara rannsókna eru síðan birtar í svokölluðum etnógrafíum.
Á Íslandi hafa mannfræðingar aðalega rannsakað sifjakerfi, fiskveiðar, kynferði, félagslegar breytingar og þjóðerniskennd auk sagna og félagsgerðar á þjóðveldisöld.
Mannfræði hefur verið kennd við Háskóla Íslands frá 1970 og sem aðalgrein við félagsvísindadeild frá 1980.
Heimildir:
- Kennsluskrá Háskóla Íslands árið 2002-2002. Háskóli Íslands Kennslusvið, Reykjavík 2002.
- Íslenska alfræðiorðabókin. Örn og Örlygur, Reykjavík 1990.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur15.5.2002
Flokkun:
Tilvísun
Helga Sverrisdóttir. „Hvað er mannfræði og hvað hafa mannfræðingar rannsakað á Íslandi? “. Vísindavefurinn 15.5.2002. http://visindavefur.is/?id=2390. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundur
Helga Sverrisdóttirstjórnmálafræðingur, um tíma starfsmaður Vísindavefsins
Prenta
Senda
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvað er menningarmannfræði og félagsmannfræði?
- Hver var A.R. Radcliffe-Brown?
- Hver var Margaret Mead og hvert var hennar framlag til mannfræðinnar?
- Hver var Ruth Benedict og hvert var hennar framlag til mannfræðinnar?
- Hver var Claude Lévi-Strauss og hvaða áhrif hafði hann á mannfræðina?
- Hver var Ernest Gellner og hvað gerði hann merkilegt?





