Spurning

Fita og kolvetni eru gerð úr sömu frumefnum, en hvað er ólíkt með þeim?

Spyrjandi

Jón Grímsson

Svar

Kolvetni eru gerð úr frumefnunum kolefni (C), vetni (H) og súrefni (O), rétt eins og fita. Uppröðun frumefnanna og innbyrðis hlutföll eru aftur á móti mismunandi. Kolvetni eru gerð úr kolefnishring sem á hanga vetnis- og súrefnisfrumeindir.

Fituefnið þríglýseríð, sem er algengasta fæðufitan, er gert úr þremur fitusýrum sem hanga á glýserólgrind. Fitusýrurnar eru úr kolefniskeðju og á henni hanga vetnisfrumeindir. Fitusýrurnar eru festar við glýserólgrindina með estertengjum sem innihalda súrefni.

Mun fleiri vetnisfrumeindir hanga hins vegar á kolefniskeðju fitusýranna en á kolefnishring kolvetna, sem gerir að verkum að oxunarstaða fitu er mun hærri en kolvetna. Fita inniheldur þar af leiðandi mun meiri orku en kolvetni.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur5.3.2002

Tilvísun

Anna Ragna Magnúsardóttir og Guðrún V. Skúladóttir. „Fita og kolvetni eru gerð úr sömu frumefnum, en hvað er ólíkt með þeim?“. Vísindavefurinn 5.3.2002. http://visindavefur.is/?id=2152. (Skoðað 19.5.2013).

Höfundar

Anna Ragna MagnúsardóttirnæringarfræðingurGuðrún V. Skúladóttirlífefnafræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Dan Daníelsson
(1877-1957)
( Fyrri Næsti )

Stærðfræðingur og brautryðjandi í stærðfræðiiðkun á Íslandi. Skrifaði bæði vísindaritgerðir, kennslubækur og rit fyrir almenning og kenndi stærðfræði alla ævi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans