- Aðalástæðan fyrir skemmdum í majónesi er þránun og því er mikilvægt að nota aðeins fyrsta flokks olíur í majónes.
- Í eggjarauðunum er bindiefnið lesitín sem gerir ýrulausnina stöðuga.
- Ediksýran minnkar líkur á að varan skemmist af völdum örvera.
- Auk þess sem kryddið gefur bragð sest það á yfirborð fitudropanna og gerir þá stöðugri og verkar því sem annað bindiefni.
- 2 eggjarauður
- 1/4-1/2 tsk salt
- 1/8 tsk hvítur pipar
- 1/2 tsk sinnep
- 1 tsk sítrónusafi, borðedik eða estragonedik
- 2-3 dl olía