Spurning

Geta uppvakningar orðið til?

Spyrjandi

Hrafn Hrafnhildarson
Skúli Magnússon

Svar

Eins og allir vita sem hafa séð vandaðar heimildarmyndir á borð við Night of the Living Dead og 28 Days Later, þá eru uppvakningar jafn samofnir veruleikanum og skattar eru launaumslaginu eða dauðinn lífinu. Reglulega koma upp uppvakningafaraldrar í Bandaríkjunum og Bretlandi, en minna hefur sést til þeirra á meginlandi Evrópu, þó nýlega hafi þeir látið á sér kræla á Spáni.

Ekki er fullkomlega vitað hvað orsakar upprisu hinna dauðu. Vísindamenn eru þó vissir um að uppvakningar greinast í tvær deilitegundir. Annars vegar er það bandaríska deilitegundin Zombiana somnium americanis en hún orsakast af geimgeislun frá Venus. Hins vegar er það breska deilitegundin Zombiana somnium angles en uppruna hennar má rekja til bræðisveirunnar svokölluðu.


Allar tilraunir okkar á Vísindavefnum til að komast yfir sýnishorn af bræðisveirunni hafa mistekist. Okkur þótti þó ótækt með öllu að fjalla um uppvakninga án þess að vinna einhverjar grunnrannsóknir, svo við gerðum sumarstarfsmann okkar út af örkinni, og sendum hann til Bandaríkjanna til að komast í tæri við alvöru uppvakninga. Ferð hans heppnaðist ágætlega framan af, en samband við starfsmanninn rofnaði á tímabili, og við heimkomuna kom í ljós að hann hafði orðið fyrir því óláni að vera bitinn af einum hinna lifandi dauðu, eins og sést hér á myndinni.

Sumarstarfsmaðurinn sem hafði verið málgefinn mjög fyrir ferðalagið, reyndist nú með öllu óviðræðuhæfur og afar ósamvinnufús þegar við á Vísindavefnum reyndum að spyrja hann út í niðurstöður sínar. Satt að segja var hann nokkuð ofbeldisfullur og beit nokkra starfsmenn til blóðs áður en okkur tókst að loka hann inni í kjallara þar sem massagreinir og önnur mælitæki Vísindavefsins eru geymd. Þar dúsir hann nú og hugsar sinn gang milli þess sem hann lemur á hurðina, stynur mjög og eyðileggur dýr mælitæki.


Sumarstarfsmaður Vísindavefsins við rannsóknir. Á myndinni sjást einnig nokkur viðfangsefna hans.

Óhjákvæmileg töf verður á niðurstöðum okkar úr þessari rannsókn, því einhver pest hefur brotist út meðal starfsmanna Vísindavefsins, sem hafa flestir hnigið niður við störf sín. Svo undarlega vill til að þeir sem þjást af pestinni eru einmitt þeir sem sumarstarfsmaðurinn glefsaði í, en við teljum að ekki séu næg gögn fyrir hendi til að geta ályktað að orsakasamband sé þar á milli.

Eitthvað virðast fórnarlömb pestarinnar þó vera að braggast, og rétt í þessu stauluðust flest þeirra á fætur. Þeim virðist liggja talsvert á að komast inn til okkar hinna, því það linnir vart höggunum á hurðina að skrifstofunni. Svarinu verður haldið áfram um leið og undirritaður er búinn að hleypa þeim inn....


Hafi einhverjir lesendur ekki þegar áttað sig þá er rétt að taka fram að þetta er föstudagssvar. Ef einhver sannleikskorn finnast í því lentu þau þar fyrir misskilning.

Fleiri svör á Vísinavefnum:
Ítarefni og myndir:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur18.7.2008

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Geta uppvakningar orðið til?“. Vísindavefurinn 18.7.2008. http://visindavefur.is/?id=18399. (Skoðað 19.5.2013).

Höfundur

Ritstjórn Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Dan Daníelsson
(1877-1957)
( Fyrri Næsti )

Stærðfræðingur og brautryðjandi í stærðfræðiiðkun á Íslandi. Skrifaði bæði vísindaritgerðir, kennslubækur og rit fyrir almenning og kenndi stærðfræði alla ævi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013