Spurning
Hvað er víkjandi lán?
Spyrjandi
Hlynur Ólafsson, f. 1981
Svar
Víkjandi lán mæta afgangi ef fyrirtæki geta ekki greitt öllum sem eiga kröfu á þau. Þau eru því áhættusamari fyrir lánveitendur en önnur lán og að öðru jöfnu þarf að greiða hærri vexti af víkjandi lánum en öðrum.Almennt gildir um flest fyrirtæki að þau skulda mörgum aðilum. Ef allt gengur að óskum stendur tiltekið fyrirtæki í skilum við alla sem það skuldar. Ef það tekst getur fyrirtækið síðan notað eignir umfram skuldir til að greiða eigendum, til dæmis hluthöfum ef um hlutafélag er að ræða. Ef reksturinn gengur hins vegar illa finna eigendur fyrst fyrir því. Ef eignir nægja ekki fyrir skuldum geta eigendur ekki krafist þess að fá neinar greiðslur frá fyrirtækinu. Þeir sem veitt hafa slíku fyrirtæki víkjandi lán finna næst fyrir vandræðum þess. Segja má því að víkjandi lán séu aftast í skuldaröðinni. Ef eignir fyrirtækis nægja ekki til að greiða öllum sem eiga kröfur framar í skuldaröðinni fá þeir sem veitt hafa víkjandi lán ekkert endurgreitt.

Þeir sem veitt hafa víkjandi lán hafa því um sumt svipaða stöðu og hluthafar í fyrirtæki; þessir hópar sitja saman í súpunni ef eignir nægja ekki fyrir skuldum við aðra. Hluthafar eiga einungis kröfu á það sem af gengur þegar öllum öðrum hefur verið greitt. Á ensku er þetta kallað að vera residual claimant en claimant er kröfuhafi, sá sem á kröfu, og residue er afgangur. Þeir sem veitt hafa víkjandi lán eru einu skrefi framar en hluthafar í röð kröfuhafa. Þeir eiga einungis kröfu á að fá þau lán sem þeir hafa veitt endurgreidd ef eitthvað er afgangs þegar aðrir lánveitendur hafa fengið sitt.
Vegna þessa eiginleika víkjandi lána geta þau stundum komið, að minnsta kosti að nokkru marki, í stað eigin fjár. Til dæmis geta fjármálafyrirtæki að ákveðnu marki notað víkjandi lán til að fullnægja kröfum sem gerðar eru um hve mikið eigið fé þeirra þarf að vera.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvað er annars vegar lán með jöfnum afborgunum og hins vegar jafngreiðslulán? eftir Gylfa Magnússon
- Ef maður greiðir upp lán, þarf þá að borga áfallnar verðbætur? Ef svo er, þá af hverju? eftir Gylfa Magnússon Mynd:
- Wikipedia.com - queue. Sótt 22.2.2011.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur13.6.2001
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Gylfi Magnússon. „Hvað er víkjandi lán?“. Vísindavefurinn 13.6.2001. http://visindavefur.is/?id=1697. (Skoðað 20.6.2013).
Höfundur
Gylfi Magnússondósent í hagfræði við HÍ




