Spurning
Hver eru þrjú stærstu lönd í heiminum í röð?
Spyrjandi
Þráinn Sigurbjarnarson
Svar
Hér er einnig svarað eftirfarandi spurningum:- Hvað búa margir í Noregi, og hvað er landið stórt? (Þorkell Guðjónsson)
- Hvað er Grænland stórt? (Arnar Ingi)
- Hvar er Víetnam? (Bjarni Jónasson)
Til að finna lista yfir lönd sem eru stærst eða mest á tilteknu sviði, til dæmis að fólksfjölda eða flatarmáli er best að fara í flokkinn charts. Tölurnar yfir fólksfjölda eru áætlaðar fyrir júlí 2005. Ef farið er eftir honum eru þetta þrjú fjölmennustu ríkin:
- Kína 1.306.313.812 manns
- Indland 1.080.264.388 manns
- Bandaríkin 295.734.134 manns
- Rússland 17.075.200 km2
- Kanada 9.976.140 km2
- Bandaríkin 9.629.091 km2
- Fólksfjöldi: 4.604.745
- Flatarmál: 324.220 km2
Á síðu um Víetnam í World Factbook stendur meðal annars:
Staðsetning: Suðaustur-Asía, strönd liggur að Tælandsflóa, Tonkinflóa og Suður-Kínahafi, landamæri að Kína, Laos og Kambódíu.Á setrinu má einnig finna kort af ýmsum svæðum, meðal annars Suðaustur-Asíu. Þar sést staðsetning Víetnam mjög vel.
Þess má að lokum geta að svarshöfundur vissi ekki af þessum heimildum þegar hann byrjaði að vinna svarið en fann þær með hjálp leitarvéla, meðal annars google og yahoo. Þar er best að byrja ef ef ekki liggur fyrir hvar er best að leita. Oft þarf að vera þolinmóður og prófa sig áfram með leitarorð.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur8.6.2001
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Ögmundur Jónsson. „Hver eru þrjú stærstu lönd í heiminum í röð?“. Vísindavefurinn 8.6.2001. http://visindavefur.is/?id=1689. (Skoðað 25.5.2013).
Höfundur
Ögmundur Jónssonheimspekinemi við HÍ




