Spurning

Hvað er það í áfengi sem gerir fólk háð því?

Spyrjandi

Freyja Hrönn

Svar

Það er ekki vitað algerlega fyrir víst hvað það er í áfengi sem gerir fólk háð því. Hins vegar eiga öll vímu- og ávanaefni það sameiginlegt að losa boðefnið dópamín á ákveðnum stað í heilanum. Dópamínbrautir heilans hafa verið kallaðar ýmsum nöfnum til dæmis ”umbunarkerfið” eða “fíknikerfið”. Losun á dópamíni í umbunarkerfinu veldur vellíðan og ræsing á kerfinu á sér reyndar stað við margs konar ánægjulegt atferli eins og til dæmis kynlíf.



Allir hafa í sér umbunarkerfi og er það talið mikilvægt meðal annars til að læra og viðhalda hegðun. Þar sem öll ávanaefni og “fíknihegðun” (til dæmis spilafíkn) ræsa kerfið telja margir að þeir sem þróa með sér fíkn hafi einhvers konar konar galla í umbunarkerfinu.

Þegar neysla áfengis er mikil bætast við fleiri þættir sem gera menn háða efninu. Áfengi losar ekki bara dópamaín heldur einnig mörg önnur boðefni í heilanum og náttúruleg viðbrögð heilans eru að vinna á móti þessum nýju aðstæðum. Þetta veldur smám saman auknu áfengisþoli og svo fráhvarfseinkennum ef drykkju er hætt. Heilinn er þá orðinn vanur áfengisbaði og einstaklingurinn um leið háður áfengi til forðast fráhvarfseinkenni og líða eðlilega.

Á Vísindavefnum eru fleiri svör sem fjalla um áfengi eða fíkn, til dæmis:
Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur9.3.2009

Tilvísun

Bjarni Össurarson Rafnar. „Hvað er það í áfengi sem gerir fólk háð því?“. Vísindavefurinn 9.3.2009. http://visindavefur.is/?id=15805. (Skoðað 21.11.2009).

Höfundur

Bjarni Össurarson Rafnaryfirlæknir vímuefnadeildar LSH



Leit