Spurning
Hvað éta kanínur?
Spyrjandi
Valgerður Bjarnadóttir, Andrea Helgadóttir
Svar
Kanínur eru jurtaætur og geta étið ýmiss konar plöntur. Villtar kanínur éta einkum gras en einnig ýmiss konar lauf, blóm, ber, rætur, trjábörk og jafnvel trjágreinar. Fæða þeirri inniheldur mikið beðmi sem er tormeltanlegt en meltingarkerfi þeirra hefur þróað aðferðir til að melta það betur.Kanínur eru svokölluð fölsk jórturdýr og gefa frá sér tvær mismunandi gerðir hægða. Fyrri gerðin eru mjúkar og slímugar kúlur, ljósgrænar að lit. Þessar hægðir hafa ekki verið fullmeltar og kanínurnar éta þær strax eftir að þær gefa þær frá sér, gjarnan að nóttu til eða snemma morguns. Seinni gerð hægða eru fullmeltar en þær eru dökkar og harðar. Með því að láta matinn fara tvisvar í gegnum meltingarkerfið á þennan hátt ná kanínurnar að vinna næringarefnin úr fæðunni betur en ella.
![]() |
Þeir sem eiga kanínur sem gæludýr geta gefið þeim ýmsan mat. Framleiddar eru fóðurblöndur eða kjarnfóður fyrir kanínur en passa verður að gefa þeim ekki of stóra skammta af slíku því þá geta þær þyngst óhóflega og veikst. Gott er að fóðurblandan sé trefjarík og gæta verður að því að fóðrið sé ætlað kanínum en fóður sem ætlað er öðrum nagdýrategundum hentar kanínum oft illa.
Kanínur hafa gott af því að fá nóg af heyi og grasi og þær geta lifað á slíku fæði eintómu. Einnig er gott að gefa þeim ýmiss konar grænmeti, svo sem salat, kál, gulrætur og fleira. Þær geta líka étið ýmislegt úr garðinum, eins og fífla og arfa. Best er að hafa fæðuna fjölbreytta og gefa þeim grænmeti á hverjum degi. Hins vegar mega kanínur helst ekki borða brauð eða annað kornmeti og forðast ber að gefa þeim salt- og sykurríkar fæðutegundir.
Snöggar breytingar á fæðu geta farið illa í meltingarfæri kanína. Það borgar sig að venja þær við nýjar fæðutegundir smátt og smátt með því að gefa þeim lítinn skammt að smakka og fylgjast svo með því hvort þær fái niðurgang á næstu tveimur sólarhringum. Ef þær fá niðurgang skal hætta að gefa þeim fæðutegundina en annars má halda því áfram og gefa þeim jafnvel aðra nýja fæðutegund nokkrum dögum seinna. Kanínur þurfa líka að hafa aðgang að fersku vatni og nauðsynlegt er að gefa þeim hreint vatn reglulega.
Heimildir
- Fóðrun kanína - Dýralæknastofa Dagfinns. (Skoðað 28.6.2012).
- Kanínur - Dýralækningastofa Helgu Finnsdóttur. (Skoðað 28.6.2012).
- Rabbit - Wikipedia, the free encyclopedia. (Skoðað 28.6.2012).
- Rabbit - Wikipedia, the free encyclopedia. (Sótt 28.6.2012).
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur28.6.2012
Tilvísun
Eva María Oddsdóttir, Guðrún Þóra Atladóttir og Kristín Birta Atladóttir. „Hvað éta kanínur?“. Vísindavefurinn 28.6.2012. http://visindavefur.is/?id=10877. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundar
Eva María Oddsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksinsGuðrún Þóra Atladóttirnemandi í Háskóla unga fólksinsKristín Birta Atladóttirnemandi í Háskóla unga fólksins






