Spurning

Hvaða arkitekt hannaði Colosseum í Róm, hve stórt er það og hve gamalt?

Spyrjandi

Gyrðir Viktorsson, f. 1991

Svar

Colosseum, hringleikahúsið í Róm, var reist á árunum 70-82 e.Kr. Vinna hófst við það undir stjórn Vespasíanusar keisara en Títus keisari vígði það árið 80 með hundrað daga kappleikjum. Tveimur árum síðar lýkur Dómitíanus, þriðji keisarinn sem að byggingunni kom, við efstu hæð mannvirkisins sem þá er fullgert.

Arkitektinn er ókunnur og eins víst að margir hafi komið að hönnun með einum eða öðrum hætti.

Colosseum er sporöskjulaga og þekur 190x155 metra. Húsið tekur 50.000 manns í sæti. Það var fyrsta hringleikahúsið sem reist var án stuðnings landslags og jarðefnis því að fram að þessu höfðu hringleikahús verið grafin í jörð eða berg í brekkum. Í Rómaveldi voru hringleikahús af þessum toga notuð undir skemmtanir sem einkum fólust í bardögum milli dýra, dýra og manna eða manna eingöngu. Þar var barist til dauða við fögnuð viðstaddra.

Á miðöldum varð byggingin fyrir miklum skemmdum af völdum eldinga, jarðskjálfta og skemmdarverka.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Heimildir og mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur29.10.2000

Tilvísun

HMH. „Hvaða arkitekt hannaði Colosseum í Róm, hve stórt er það og hve gamalt?“. Vísindavefurinn 29.10.2000. http://visindavefur.is/?id=1051. (Skoðað 22.5.2013).

Höfundur

HMHheimspekingur og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Sofia Kovalevskaya
(1850-1891)
( Fyrri Næsti )

Rússneskur stærðfræðingur, ein fyrsta konan í Evrópu sem lauk doktorsprófi og varð fullgildur prófessor. Rannsakaði m.a. hlutafleiðujöfnur, sporbaugsheildi og hringa Satúrnusar.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans