Sólin Sólin Rís 04:55 • sest 21:57 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 05:20 • Sest 12:10 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 00:37 • Síðdegis: 13:22 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:14 • Síðdegis: 19:34 í Reykjavík

Hvernig hagar njálgur sér í mönnum?

Magnús Jóhannsson

Njálgur (Enterobius vermicularis) er lítill innyflaormur og er algengasta sníkjudýrið hjá börnum og fullorðnum í löndum þar sem veðurfar er svipað og hjá okkur. Í sumum nálægum löndum er talið að allt að 20% barna séu smituð. Hægt er að lesa meira um smittíðni hér á landi í svari Karls Skírnissonar við spurningunni Hvaða ormar lifa í meltingarvegi fólks á Íslandi?

Smásjármynd af njálgseggjum.

Njálgurinn er þráðlaga, hvítleitur að lit og er kvendýrið um 10 mm að lengd en karldýrið um 3 mm. Smitun verður á þann hátt að egg berst frá smituðum einstaklingi og í munn annars. Eggin berast milli manna með fingrum, fötum, sængurfötum og leikföngum og þau geta lifað í umhverfinu í allt að þrjár vikur við venjulegan stofuhita. Eggin geta einnig svifið um í loftinu og borist þannig í öndunarfæri og síðan meltingarfæri manna.

Eggin klekjast fljótt út í meltingarfærunum og dýrin ná fullum þroska í neðri hluta þarmanna á 2 til 6 vikum. Kvendýrin skríða síðan út úr endaþarminum, oftast að næturlagi, og verpa eggjum sínum í húðfellingar og festa þau þar með límkenndu efni. Hreyfingar ormanna og límið sem þeir festa eggin með valda kláða. Ekki er með vissu vitað til þess að njálgur valdi öðrum óþægindum en kláða og margir þeirra sem ganga með njálg hafa engin einkenni.

Smásjármynd af njálg.

Hægt er að greina njálg með því að finna orma eða egg umhverfis endaþarminn eða í saur. Til eru ágæt lyf við njálg en eins og ætti að sjást af þessari lýsingu er ekki alltaf einfalt mál að losna við hann. Það verður að meðhöndla alla fjölskyldumeðlimi, oftast þarf að gefa meðferðina nokkrum sinnum og gæta verður ýtrasta hreinlætis í hvívetna. Auk þess verður að þvo vandlega föt og rúmföt, við minnst 60° eða í efnalaug. Kláði í eða umhverfis endaþarm getur stafað af ýmsu öðru en njálg og þess vegna er nauðsynlegt að fara til læknis og fá hjálp við greiningu og meðferð.

Myndir:

Höfundur

Magnús Jóhannsson

prófessor emeritus í líflyfjafræði við HÍ

Útgáfudagur

30.10.2007

Spyrjandi

Steinunn Karlsdóttir, f. 1988

Tilvísun

Magnús Jóhannsson. „Hvernig hagar njálgur sér í mönnum?“ Vísindavefurinn, 30. október 2007. Sótt 2. maí 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=6874.

Magnús Jóhannsson. (2007, 30. október). Hvernig hagar njálgur sér í mönnum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=6874

Magnús Jóhannsson. „Hvernig hagar njálgur sér í mönnum?“ Vísindavefurinn. 30. okt. 2007. Vefsíða. 2. maí. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=6874>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Myndir:...