Spurning
Hvers vegna heyrast stundum hljóð úr innyflum manna, til dæmis þegar fólk er svangt?
Spyrjandi
N.N.
Svar
Menn gleypa talsvert af lofti sem síðan fer sem leið liggur gegnum meltingarfærin eins og þekkt er. Bakteríur í görnunum framleiða einnig lofttegundir. Samdráttur garnanna gerir það að verkum að loftið hreyfist til og þannig getur framkallast hljóð. Garnirnar eru að dragast saman og þegar engin er fæðan þá gaula þær.Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur11.7.2000
Flokkun:
Tilvísun
Jónas Magnússon. „Hvers vegna heyrast stundum hljóð úr innyflum manna, til dæmis þegar fólk er svangt?“. Vísindavefurinn 11.7.2000. http://visindavefur.is/?id=628. (Skoðað 20.5.2013).
Höfundur
Jónas Magnússonprófessor í læknisfræði við HÍ





