Spurning

Hvað þýðir orðasambandið "að liggja vel við höggi" og hvernig er hægt að nota það?

Spyrjandi

Telma Torfadóttir

Svar

Orðasambandið að liggja vel við höggi er notað um þann sem auðvelt er að koma höggi á eða klekkja á. Það er notað bæði í eiginlegri merkingu í slagsmálum, þegar einhver stendur þannig að auðvelt er að slá til hans og hitta, og í óeiginlegri merkingu til dæmis í orðaskiptum. Einhver segir eitthvað sem annar grípur á lofti og notar til að klekkja á honum. Í bæði skiptin er hægt að segja: „Hann lá svo vel við höggi“.


Það er ekki vænlegt til sigurs í boxi að liggja vel við höggi.

Í Fóstbræðra sögu segir frá því að Þorgeir Hávarsson hjó saklausan mann eingöngu af því að hann studdist fram á staf sinn og „stóð svo vel til höggsins“. Hugsunin er alveg hin sama og að liggja vel við höggi.

Mynd: BillyConn.net

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur31.7.2006

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðasambandið "að liggja vel við höggi" og hvernig er hægt að nota það?“. Vísindavefurinn 31.7.2006. http://visindavefur.is/?id=6096. (Skoðað 9.2.2010).

Höfundur

Guðrún Kvaranprófessor, forstöðumaður Orðabókar Háskólans



Leit