Spurning

Af hverju er fólk loðið undir höndunum?

Spyrjandi

Sæþór Bragi Sölvason, f. 1993

Svar

Á kynþroskaskeiði verða miklar breytingar á líkömum bæði pilta og stúlkna. Brjóst og mjaðmir stúlkna stækka og þær byrja á blæðingum, röddin dýpkar hjá báðum kynjum, þó meira hjá piltum en stúlkum, kynfæri þroskast og piltar fara að geta fengið sáðlát, og líkaminn stækkar hratt.

Bæði kyn fá einnig hár á ýmsa staði þar sem ekki var mikill hárvöxtur fyrir. Piltar fá skegg og bringuhár og verða oft loðnir á hand- og fótleggjum. Bæði piltar og stúlkur fá svo hár kringum kynfæri og undir höndum.

Karlhormón ráða því að hár vex undir höndum fólks. Á kynþroskaskeiði fara eistu pilta að framleiða mikið magn af karlhormónum. Hjá báðum kynjum taka nýrnahetturnar einnig til við að framleiða karlhormón í allnokkru magni, nógu miklu til að koma af stað hárvexti undir höndum hjá bæði piltum og stúlkum.

Frekara lesefni á Vísindavefnum Heimildir og mynd

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur19.5.2006

Tilvísun

HMS. „Af hverju er fólk loðið undir höndunum?“. Vísindavefurinn 19.5.2006. http://visindavefur.is/?id=5945. (Skoðað 18.5.2013).

Höfundur

HMSB.A. í sálfræði og doktorsnemi í taugavísindum við Brown University



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Björnsson
(1912-1999)
( Fyrri Næsti )

Hagfræðingur og stjórnmálamaður, samdi mörg rit um þjóðhagfræði og skyld svið og þýddi einnig erlend rit. Var um langa hríð mikilvægur ráðgjafi stjórnvalda.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013