Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaða dilk draga mál á eftir sér?

Guðrún Kvaran

Orðasambandið eitthvað dregur dilk á eftir sér 'eitthvað hefur eitthvað slæmt í för með sér' er vel þekkt í málinu allt frá því á 18. öld. Það er ávallt notað í neikvæðri merkingu og stundum að viðbættu orðinu illan, þ.e. draga illan dilk á eftir sér.

Líkingin er án efa fengin úr sveitamáli. Dilkur eða dilklamb er lamb sem sýgur móður sína, lamb að hausti. Illur dilkur er þá ómerkilegur, óásjálegur dilkur sem fylgir móður sinni og er yfirfærða merkingin þaðan fengin.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

28.5.2004

Spyrjandi

Fríða Tómasdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða dilk draga mál á eftir sér? “ Vísindavefurinn, 28. maí 2004. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4300.

Guðrún Kvaran. (2004, 28. maí). Hvaða dilk draga mál á eftir sér? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4300

Guðrún Kvaran. „Hvaða dilk draga mál á eftir sér? “ Vísindavefurinn. 28. maí. 2004. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4300>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...