Spurning
Hvað eru til margar apategundir?
Spyrjandi
Guðrún Magnúsdóttir, f. 1990
Svar
![]() Karlórangútan (Pongo pygmaeus) frá Borneó. |

Þessi api nefnist á ensku „bald uakari“ (Cacajao calvus calvus)
og er með áberandi rautt andlit. Hann er einn af svokölluðum nýjaheimsöpum og finnst í Suður-Ameríku, aðallega í Brasilíu.
![]() Músalemúr frá Madagaskar. |
Vísindamenn óttast að á næstu 10-20 árum muni ein af hverjum tíu tegundum prímata deyja út. Helst er það áðurnefnd eyðing búsvæða sem veldur náttúrufræðingum áhyggjum en einnig hefur rányrkja hoggið stór skörð í fjölmarga stofna. Svonefndir bonobo-apar (Pan paniscus) hafa til að mynda farið illa út vegna borgarastyrjaldarinnar í Kongó ekki síður en íbúar landsins.
Þótt ótrúlegt megi virðast hafa á síðastliðnum árum fundist nokkrar nýjar tegundir prímata. Meðal þeirra eru svokallaðir músalemúrar sem lifa í þéttum skógum Madagaskareyju. Þessar nýfundnu prímatategundir eru yfirleitt afar smáar, frá nokkrum tugum gramma upp í 200 g að þyngd. Árið 2002 fundust tvær nýjar tegundir apakatta í Amasonfrumskóginum, á stærð við litla ketti.
Heimildir, myndir og fréttir:
- D. E. Wilson og D. M. Reeder. 1993. Mammal Species of the World: A Taxonomic and Geographic Reference. 2 útg. Smithsonian Institution Press, Washington
- The Sacramento Zoo
- International Union for Conservation of Nature and Natural Resources
- www.primates.com
- CNN.com
Mörg svör um prímata og apa er að finna á Vísindavefnum og má kalla þau fram með því að smella á efnisorðin neðan við svarið.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur15.9.2003
Efnisorð
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Hvað eru til margar apategundir?“. Vísindavefurinn 15.9.2003. http://visindavefur.is/?id=3732. (Skoðað 9.2.2010).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur






