Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hafa sauðnaut verið flutt til Íslands?

Margrét Einarsdóttir

Eftir fyrri heimsstyrjöldina komu upp hugmyndir á Íslandi um að nýta auðlindir Grænlands. Meðal annars þótti vænlegt að flytja inn sauðnaut og rækta þau hér.

Forvígismenn þeirrar hugmyndar voru Ársæll Árnason bókbindari og bókaútgefandi í Reykjavík, Þorsteinn Jónsson útgerðar- og kaupmaður frá Seyðisfirði, og Kristján Kristjánsson skipstjóri frá Barðaströnd. Þeir stofnuðu félagið Eiríkur rauði og sóttu um styrk til Alþingis árið 1928, sem samþykkti styrkveitingu fyrir 20.000 kr.

Eftir erfiða flutninga komu sauðnaut til Íslands árið 1929 að Gunnarsholti. Fyrstir voru sjö kálfar en þeir drápust fljótlega. Síðar komu önnur sjö dýr sem urðu sömu örlögum að bráð. Talið er að næringarskortur hafi orðið sauðnautunum að aldurtila.

Sauðnaut, eða moskusuxar (Ovibos moschatus) eru klaufdýr af undirætt geitfjár. Þau nærast einkum á grasi, mosa og skófum, og lifa í 20-30 dýra hjörðum á freðmýrum N-Ameríku og á Grænlandi.

Heimildir og mynd:


Þetta svar er eftir grunnskólanemanda á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.

Höfundur

grunnskólanemi í Digranesskóla

Útgáfudagur

27.11.2002

Spyrjandi

Aðalsteinn Sigfússon

Tilvísun

Margrét Einarsdóttir. „Hafa sauðnaut verið flutt til Íslands? “ Vísindavefurinn, 27. nóvember 2002. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2912.

Margrét Einarsdóttir. (2002, 27. nóvember). Hafa sauðnaut verið flutt til Íslands? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2912

Margrét Einarsdóttir. „Hafa sauðnaut verið flutt til Íslands? “ Vísindavefurinn. 27. nóv. 2002. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2912>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hafa sauðnaut verið flutt til Íslands?
Eftir fyrri heimsstyrjöldina komu upp hugmyndir á Íslandi um að nýta auðlindir Grænlands. Meðal annars þótti vænlegt að flytja inn sauðnaut og rækta þau hér.

Forvígismenn þeirrar hugmyndar voru Ársæll Árnason bókbindari og bókaútgefandi í Reykjavík, Þorsteinn Jónsson útgerðar- og kaupmaður frá Seyðisfirði, og Kristján Kristjánsson skipstjóri frá Barðaströnd. Þeir stofnuðu félagið Eiríkur rauði og sóttu um styrk til Alþingis árið 1928, sem samþykkti styrkveitingu fyrir 20.000 kr.

Eftir erfiða flutninga komu sauðnaut til Íslands árið 1929 að Gunnarsholti. Fyrstir voru sjö kálfar en þeir drápust fljótlega. Síðar komu önnur sjö dýr sem urðu sömu örlögum að bráð. Talið er að næringarskortur hafi orðið sauðnautunum að aldurtila.

Sauðnaut, eða moskusuxar (Ovibos moschatus) eru klaufdýr af undirætt geitfjár. Þau nærast einkum á grasi, mosa og skófum, og lifa í 20-30 dýra hjörðum á freðmýrum N-Ameríku og á Grænlandi.

Heimildir og mynd:


Þetta svar er eftir grunnskólanemanda á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna....