Spurning
Hvernig er stjórnarfariđ í Kína?
Spyrjandi
Snćdís Arnardóttir
Svar
Frá ţví Kína var sameinađ í eitt ríki hefur stjórnun landsins miđađ ađ ţví ađ halda landinu saman sem einu ríki. Sökum ţess hversu víđfemt landiđ ţá hafa landsstjórnir hvers tíma orđiđ ađ dreifa valdi sínu og ţví urđu snemma til stađbundin stjórnvöld sem höfđu ţađ hlutverk ađ tryggja yfirráđ valdsstjórnarinnar. Stjórnarfariđ hefur ţróast frá ţví ađ vera einveldi konungs og keisara öldum saman yfir í lýđveldi snemma á 20. öldinni sem varđi ţó stutt. Um miđja 20. öldina komst Kommúnistaflokkurinn til valda í Kína en í dag byggir stjórnarfar landsins á sósíalisma međ kínverskum einkennum.Í stađ ţess ađ leggja sósíalískt samfélag alfariđ niđur hafa Kínverjar lagađ sósíalismann ađ sínu samfélagi. Sósíalismi međ kínverskum einkennum merkir ađ samfélagiđ byggir á ţremur kenningum; kenningum Konfúsíusar, Marx og Leníns og kapítalisma.

Hugmyndir Konfúsíusar móta feđraveldiđ sem ríkir í Kína og ţjóđarhollustuna sem ađ kínverskir borgarar eiga ađ búa yfir. Ţćr styđja tengslamyndanir, ţađ er ađ einstaklingurinn verđi ađ hafa félagsleg tengsl á réttum stöđum til ađ hafa möguleika á ađ hafa áhrif. Samkvćmt Konfúsíusi á stuđningur viđ leiđtoga ađ vera alger og ţađ er ekki viđ hćfi ađ efast um vald hans. Einstaklingurinn á ađ vera góđhjartađur og hefur rétt til ađ mótmćla óréttlćti. Samfélagiđ á ađ byggja á raunsći.
Kenningar Marx og Leníns móta stjórnkerfi landsins. Kommúnistaflokkurinn er langstćrsti stjórnmálaflokkurinn í Kína og hefur veriđ viđ völd frá árinu 1949. Skipulag ríkisins byggir á fimm ára áćtlunarbúskap. Kínverski herinn styđur Kommúnistaflokkinn og fylgir línum hans. Stjórnkerfiđ er miđstýrt og ćtíđ er hugađ ađ ţví ađ hagsmunum flokksins sé borgiđ.
Kenningar kapítalismans móta hagkerfi Kína en samkvćmt lögmálum hans rćđur markađurinn. Áhrif kapítalismans eru bćđi til góđs og ills. Ţannig hefur orđiđ mikill efnahagslegur uppgangur en um leiđ hefur biliđ á milli ríkra og fátćkra breikkađ. Kenningar kapítalista gera kröfu um ađ landinu sé stjórnađ međ lögum svo ađ markađurinn viti ađ hverju hann gengur, en engu ađ síđur hefur spilling orđiđ vandamál í Kína međ tilkomu markađshagkerfisins.
Frekari fróđleikur á Vísindavefnum:
- Getiđ ţiđ sagt mér allt um Kína? eftir Sigrúnu Harđardóttur
- Hvađ getiđ ţiđ sagt mér um kínverskt samfélag? eftir Geir Sigurđsson
- Hvađ fólst í menningarbyltingunni í Kína? eftir Sverri Jakobsson
- Hver var hinn kínverski Konfúsíus og hvađ er konfúsismi? eftir Geir Sigurđsson
- Hver er munurinn á sósíalisma og kommúnisma? eftir Ragnheiđi Kristjánsdóttur
Um ţessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur8.7.2009
Efnisorđ
Kína stjórnarfar kommúnismi sósíalismi kapítalismi Konfúsíus
Tilvísun
Helga Kristín Kolbeins. „Hvernig er stjórnarfariđ í Kína?“. Vísindavefurinn 8.7.2009. http://visindavefur.is/?id=29009. (Skođađ 19.5.2013).
Höfundur
Helga Kristín Kolbeinsstjórnsýslufrćđingur, MPA




