Spurning
Hvað er Stór-Reykjavíkur svæðið stórt sem hlutfall af öllu landinu?
Spyrjandi
Hjörtur Guðjónsson
Svar
Hjá Hagstofu Íslands teljast sveitarfélögin Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Garðabær, Hafnarfjörður, Bessastaðahreppur, Mosfellsbær og Kjósarhreppur til höfuðborgarsvæðisins. Í þessu svari er gengið út frá því að sömu sveitarfélög myndi hið svokallaða Stór-Reykjavíkursvæði.Á heimasíðu Landmælinga Íslands er að finna upplýsingar um stærð sveitarfélaga á Íslandi. Flatarmál sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu er sem hér segir:
- Reykjavík 273 km2
- Kópavogur 113 km2
- Seltjarnarnes 2 km2
- Garðabær 39 km2
- Hafnarfjörður 144 km2
- Bessastaðahreppur 6 km2
- Mosfellsbær 197 km2
- Kjósarhreppur 288 km2

Skoðið einnig svar sama höfundar við spurningunni Hvert er flatarmál Vestfjarða?
Mynd: HB
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur28.3.2002
Flokkun:
Tilvísun
Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvað er Stór-Reykjavíkur svæðið stórt sem hlutfall af öllu landinu?“. Vísindavefurinn 28.3.2002. http://visindavefur.is/?id=2245. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttirlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins





