Spurning
Hver eru lögmál Newtons?
Spyrjandi
Hrafnhildur Sæberg, f. 1985;
Einar Hafliðason
Svar
Baldvin Sigurjónsson (f. 1985) spurði líka: Hver er Newton og hvað gerði hann?Með 'lögmálum Newtons' er venjulega átt við þrjú lögmál sem eru ævinlega kennd við hann og jafnvel ekki neitt annað. Þau eru þessi:
- Fyrsta lögmál Newtons, stundum einnig nefnt tregðulögmálið.
- Annað lögmál Newtons (um kraft og hröðun).
- Þriðja lögmál Newtons (um átak og gagntak).
Þyngdarlögmálið er líka stundum kennt við Newton og þá kallað 'þyngdarlögmál Newtons'. Newton setur það ekki eins skilmerkilega fram og hin lögmálin í fyrrnefndri bók, en hann beitir því með ýmsum hætti. Hægt er að lesa meira um þyngdarlögmálið í svari höfundar við spurningunni Hvað veldur aðdráttaraflinu og hvers vegna er það mismunandi milli tungla og reikistjarna?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur17.5.2001
Flokkun:
Tilvísun
Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hver eru lögmál Newtons?“. Vísindavefurinn 17.5.2001. http://visindavefur.is/?id=1620. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
Þorsteinn Vilhjálmssonprófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011




