Spurning

Hvaða máli skiptir hvort miðstöðvarofnar eru hvítir eða svartir?

Spyrjandi

Pétur Hermannsson og Þorsteinn Egilson

Svar

Varmaflutningur frá venjulegum miðstöðvarofnum skiptist gróflega til helminga. Annars vegar verður varmageislun frá yfirborði ofnsins til umhverfisins, og hins vegar varmaburður með loftinu sem leikur um ofninn. Ef ofninn væri hins vegar úr póleruðu áli, þá yrði varmaflutningur með geislun nær enginn og hitunarafköstin mundu minnka um helming. Geislun frá póleraða álinu er aðeins um 4% af geislun svarthlutar.

Það merkilega er að hvít málning er nánast "svört" með tilliti til varmageislunar því að hvítmálaður flötur geislar 90-92% af geislun hins fullkomna svarthlutar. Svört málning geislar 95-98% af svarthlutargeislun. Þannig myndu afköst ofnsins aukast um 2-3 % við að mála hann svartan í stað þess að hafa hann hvítan.

Hér er einnig forvitnilegt að bera saman við lit á dýrum. Þar sem hvítir hlutir endurkasta meira ljósi en dökkir, mætti ætla að það væri að þessu leyti óhagstætt fyrir ísbjörninn að vera hvítur; hann fari þá á mis við sólarorku sem hann gæti annars nýtt til að halda á sér hita. En hér er sannarlega ekki allt sem sýnist, frekar en með hvítu ofnana. Það hefur sem sé komið í ljós að ísbirnir og nokkur önnur hvít heimskautadýr eru nánast svört í útfjólubláu ljósi. Þau drekka með öðrum orðum í sig mikla orku frá slíkri geislun og nýta hana til að halda á sér hita.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
Lesefni:
  • Páll Hersteinsson, "Spendýr á norðurslóðum". Hjá Þorsteini Vilhjálmssyni (ritstj.), Undur veraldar. Reykjavík: Mál og menning, 1998, bls. 89-106.

Mynd:
Pétur Hermannsson spurði:
Hversu miklu meiri nýtni fáum við úr miðstöðvarofnum ef við málum þá svarta?
Þorsteinn Egilson spurði sem hér segir:
Hlutir með dökkt yfirborð taka betur við og senda betur frá sér varmageislun en ljósir hlutir. - Hvers vegna eru þá ofnar til húsahitunar hafðir hvítir?

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur19.2.2000

Tilvísun

Páll Valdimarsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hvaða máli skiptir hvort miðstöðvarofnar eru hvítir eða svartir?“. Vísindavefurinn 19.2.2000. http://visindavefur.is/?id=126. (Skoðað 20.5.2013).

Höfundar

Páll Valdimarssonprófessor í verkfræði við HÍÞorsteinn Vilhjálmssonprófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011



Leit


Vísindadagatalið

Hans Christian Ørsted
(1777-1851)
( Fyrri Næsti )

Danskur eðlis- og efnafræðingur, uppgötvaði að rafstraumar skapa segulsvið kringum sig og hafa t.d. áhrif á segulnálar. Hafði einnig áhrif á heimspeki og vísindamiðlun á sinni tíð.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013