1 hnútur er 0,514 m/s og það telst vera logn.Hnútur er mælieining um hraða skips eða vinds. Einn hnútur samsvarar einni sjómílu á klukkustund, en sjómíla er upphaflega skilgreind sem ein mínúta á lengdarbaug og er samkvæmt því 111,1 km/60 = 1852 m.
Vegna þess að jörðin er svolítið flatari við pólana er breiddar...
Hætta á snjóflóðum skapast oftast í tengslum við aftakaveður að vetrarlagi með mikilli snjókomu og skafrenningi. Krapaflóð falla einkum þegar hlánar og rignir snögglega niður í snjó, og aurskriður í kjölfar stórrigninga og örrar leysingar. Veðurfar er þannig einn mikilvægasti þátturinn sem segir til um ofanflóðahæ...
Fellibyljir eru skæðastir og algengastir á Kyrrahafi vestanverðu, norðan miðbaugs, frá dægurlínunni vestur til Filippseyja og Suður-Kína og norður til Japans. Á þessu svæði myndast að meðaltali um 20 fellibyljir á ári. Heldur færri, eða 10-12, myndast austan til á Kyrrahafi undan ströndum Mexíkó. Fellibyljir eru e...
Í stuttu máli er hægt að svara spurningunni svona:
Eftirfarandi veðuröfgar hafa færst í aukana og gera má ráð fyrir áframhaldi á þeirri þróun: Hitabylgjur, þurrkar, aftakaúrkoma og öflugir fellibyljir.
Þessar breytingar má með nokkurri vissu rekja til hlýnunar lofthjúpsins og yfirborðssjávar.
Fjöldi hitabelti...
Tjón sem fellibyljir geta valdið vex mjög með vaxandi vindhraða. Fellibylur þar sem mesti meðalvindhraði er 70 m/s veldur margföldu tjóni á við annan þar sem mesti vindhraði er 35 m/s. Umfang viðbragða ræðst því af hugsanlegum styrk þegar fellibylurinn gengur á land. Af hagkvæmnisástæðum hefur verið búinn til fimm...
Aðrir spyrjendur eru: Pálmi Þorgeir Jóhannsson, Hjalti Snær, Hákon Gunnarsson, Ingibjörg Egilsdóttir, Eva Sandra og Unnur Rún Sveinsdóttir.
Snjóflóðum er gjarnan skipt í tvo flokka: Lausasnjóflóð og flekaflóð. Bæði lausa- og flekaflóð orsakast af því að skerspenna (tog undan halla samsíða hlíðinni vegna þyngdaraf...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvað eru háloftavindar? Hvernig verða þeir til? Í hvaða hæð eru þeir?
Í stuttu máli þá eru háloftavindar vindar í lofthjúpnum þar sem viðnám yfirborðs jarðarinnar gætir ekki. Þeir myndast vegna þrýstimunar, líkt og allur vindur. Í háloftunum eru vindrastir þar sem vindur er mu...
Menn telja víða um land að samband sé á milli vinda og sjávarfalla og þá þannig að vindur aukist með aðfallinu, en það lægi þegar falla tekur út. Líklegt er að einhver raunveruleg reynsla sé að baki þessara alþýðuvísinda og er ekki aðeins talað um þetta hér á landi heldur einnig í Noregi, á Bretlandseyjum og ef ti...
Rok er vissulega vindur en ekki er þar með sagt að vindur sé endilega rok. Vindur verður ef loftþrýstingur er breytilegurr frá einum stað til annars, sjá nánar í svari Haraldar Ólafssonar við spurningunni Af hverju er vindur?. Vindhraðinn er vitanlega mjög mismunandi og er því æskilegt að hafa staðlað kerfi til að...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Er það rétt að kólnandi sjór taki til sín CO2 og hlýnandi sjór skili honum frá sér, er það rétt eða rangt?
Allar lofttegundir sem eru í andrúmsloftinu leysast upp í sjó að einhverju marki og almennt er leysni hverrar þeirra meiri við lágan sjávarhita en háan.
Styrkur...
Það er margt sem ákvarðar vindátt og fer bæði eftir staðháttum og tíma dags og árs. Mishitun yfirborðs jarðar og/eða lofthjúpsins vekur flesta vinda, en ákvarðar ekki áttina ein og sér.
Umfjöllun í veðurfræði greinir oft á milli stærðar veðurkerfa, það er hver kvarði þeirra er. Þá er talað um hnatt-, stóran, m...
Já, það getur verið mikill munur. Vindhraði í verstu fellibyljum er allmiklu meiri en í verstu vetrarlægðum.
Í textanum hér að neðan er lítillega fjallað um styrkleikaflokkun hitabeltisstorma og fellibylja. Að meginhluta er textinn lausleg þýðing á skilgreinandi texta bandarísku fellibyljamiðstöðvarinnar – les...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!