Þetta er ekki einföld spurning, mörg stór eldgos hafa orðið á Íslandi og erfitt að fullyrða hvert þeirra var öflugast. Í jarðlögum fram til nútíma (frá 17 milljónum ára fram til síðustu 10 þúsund ára) er víða að finna ummerki stórra eldgosa. Hér er bæði um að ræða stór súr sprengigos og stór basísk flæðigosa. Það ...
Stöðugleiki lofthjúpsins hverju sinni ræður mjög lóðréttri blöndun ösku og mengunarefna.
Lofthjúpnum er skipt í hvolf, neðst er veðrahvolfið og veðrahvörfin ofan á því. Veðrahvörfin eru svo stöðug að aðeins öflugustu gos geta borið ösku upp í heiðhvolfið þar ofan við. Stöðugleiki í veðrahvolfinu skiptir því oft...
Eldgos eru flokkuð á ýmsa vegu. Einna algengast er að nota aðferð George P.L. Walker, en hann flokkaði eldgos í hawaiisk (basísk hraungos), stombólsk (sprengivirk hraungos), vúlkönsk (stopul sprengivirkni með eða án hraungúls) og plínísk (sem hafa verið nefnd þeytigos á íslensku). Einnig eru tveir flokkar þar sem ...
Gossaga Kverkfjallakerfisins er ekki vel þekkt en þó má telja nánast víst að ekki hafi gosið þar eftir að land byggðist. Engin gjóskulög með efnasamsetningu Kverkfjalla hafa fundist í ísnum í Vatnajökli eða jarðvegi frá sögulegum tíma.1 Yngsta hraunið, Lindahraun, rann skömmu fyrir landnám, ef marka má umhverfisbr...
Spurningin hljóðaði svona í fullri lengd:Hvernig myndaðist hið sérstaka fjall Hvítserkur, sem stendur norðan við Loðmundarfjörð á Austfjörðum?
Hvítserkur við Húsavík norðan Loðmundarfjarðar er án vafa eitt af sérstakari fjöllum Íslands. Í útliti er fjallið ólíkt öllum öðrum fjöllum landsins. Það er ljóst yfirli...
Mikil umbrot urðu í Eyjafjallajökli fyrri hluta árs 2010. Í kjölfar mikilla jarðskorpuhreyfinga, landriss og jarðskjálftavirkni, varð lítið flæðigos á norðanverðum Fimmvörðuhálsi. Það gos hófst 20. mars og stóð í 23 daga. Hlé varð í hálfan annan sólarhring, en 14. apríl hófst sprengigos í toppöskju Eyjafjallajöku...
Gosið í Tonga-eyjakasanum í Kyrrahafi þann 15. janúar 2022 er að öllum líkindum kraftmesta gos 21. aldarinnar hingað til. Samkvæmt bráðbirgðamati sérfræðinga sem skoðað hafa málið út frá hitastigi gosmakkarins í heiðhvolfinu reis hann í um 30 km hæð (sjá neðar) og gervitungl sýna að hann varð á stuttum tíma mjög s...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvað viðheldur þeim mikla hita sem er í möttli jarðar í gegnum alla jarðsöguna og hvaðan kemur allt það mikla magn gosefna og hvað fæðir möttulinn af nýju efni?
Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hvers vegna er kjarni jarðar heitur? er yfirborð jarðkjarnans mörg hundr...
Öflugt gos hófst í Grímsvötnum þann 21. maí 2011 klukkan sjö um kvöld. Vísindamenn höfðu búist við gosi í nokkurn tíma, því að mælingar á landrisi í Eystri-Svíahnúk sýndu að kvikuhólfið undir vötnunum var komið í svipaða stöðu og fyrir eldsumbrotin í nóvember 2004. Þá hafði jarðskjálftavirkni heldur aukist misseri...
Tjón og umhverfisbreytingar af völdum gosa í Kötlukerfinu hafa orðið vegna gjóskufalls, jökulhlaupa, hraunrennslis, eldinga og jarðskjálfta. Hér verður að gera greinarmun á Kötlugosum undir jökli og Eldgjárgosinu sem náði til sprungureinarinnar utan jökuls. Gjóskufall og jökulhlaup eru algengustu skaðvaldarnir en ...
Upprunaleg hljóðaði spurningin svona:Hvernig varð Kleifarvatn til, svona jarðfræðilega séð og hvenær?
Hér er einnig svarað spurningunni:Hvaða atburður leiddi til mikillar lækkunar á yfirborði Kleifarvatns árið 2000?
Í stuttu máli: Kleifarvatn – um 10 km2 að flatarmáli og 97 m djúpt – fyllir sigdal lokaðan í bá...
Á síðustu 1100 árum er talið að um 20 rúmkílómetrar af kviku hafi komið upp úr Grímsvatnakerfinu, og einungis Kötlukerfið hafi verið mikilvirkara í framleiðslu kviku.[1] Þar sem flest gosin hafa orðið í Vatnajökli og gosmyndanir því huldar jökli, er óvissa á þessu mati vissulega mikil. Sé horft til fjölda gosa, sl...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Síðan 1970 hefur Hekla gosið á 10 ára fresti og hafa gosin verið lítil miðað við fyrri gos. Ég tel mig hafa lesið einhvers staðar að það gæti hafa myndast lítið kvikuhólf fyrir ofan gamla kvikuhólfið í Heklu. Ef þetta er rétt, hversu miklar líkur eru á því að gosið gæti úr g...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvernig myndast eyrar í fjörðum? Og hvaða lögmál eru þar ríkjandi (fallstraumar, Corioliskrafur o.fl.)? Dæmi um eyrar eru Oddeyrin á Akureyri, Þormóðseyri á Sigló, Eyrin við Skutulsfjörð (Ísafjörður).
Í stuttu máli:
Hafaldan rýfur landið og rótar upp möl og sandi við strönd...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!