Efni teljast gegnsæ ef sýnilegt ljós nær að skína að fullu eða mestu óhindrað í gegnum þau (sbr. svar við spurningunni Af hverju er gler gegnsætt og hvaða efni eru í gleri? eftir sama höfund).
Helsta orsök ógegnsæis efna er ljósgleypni þeirra. Slík ljósgleypni á sér stað þegar orka ljóssins yfirfærist á eindir...
Stóris er tökuorð í íslensku komið úr dönsku stores sem aftur tók orðið að láni úr frönsku store, í fleirtölu stores. Átt er við gegnsætt gluggatjald sem nær yfir heilan glugga oftast í stofu eða borðstofu.
Stóris er gegnsætt gluggatjald sem nær yfir heilan glugga gjarnan í stofu eða borðstofu. Orðið er tökuor...
Gler er myndlaust efni þar sem uppröðun efniseindanna (sameindanna) er óregluleg. Þetta efnisform fæst með snöggkælingu á heitum fljótandi efnismassa. Hrafntinna er dæmi um steintegund á glerformi. Gleri má líkja við mjög seigfljótandi vökva.
Í kristalli raða efnisagnirnar sér hinsvegar upp í reglulega grind. Þ...
Til þess að svara þessari spurningu þurfum við fyrst að átta okkur betur á hugtökunum glær og litlaus. Hlutir sem við sjáum í gegnum köllum við glæra eða gegnsæja. Vatn, gler og margar plasttegundir eru dæmi um gegnsæja hluti. Hlutir sem hafa engan lit köllum við litlausa. Rúður, plastpokar og mörg ílát úr plasti ...
Við þessari spurningu koma mörg svör til greina. Við skulum skoða nokkur þeirra:
Ekkert er væntanlega litlaust. Ef við gerum ráð fyrir að "ekkert" hljóti að vera það sem er ekki neitt, þá hefur það ekki lit. Þetta þýðir þó ekki að þetta ekkert sé gegnsætt, þar sem orðið gegnsætt felur í sér að til staðar sé ein...
Til að búa til glært gler á einfaldasta formi þarf að blanda saman við hátt hitastig, sandi og efnum sem innihalda frumeindirnar kalsín og natrín auk súrefnis og kolefnis.
Þegar efnin eru hituð blandast þau saman á fljótandi formi og koltvíildi rýkur burt. Síðan er blandan snöggkæld og við það ná frumeindirnar ...
Hér er sennilega vísað til „jöklafýlu“ sem liggur að baki nafninu Fúlilækur, samnefni Jökulsár á Sólheimasandi, og stafar af brennisteinsvetni, H2S, í vatninu. Undir ýmsum jöklum landsins, einkum Vatnajökli og Mýrdalsjökli, eru virkar eldstöðvar með jarðhitakerfum undir jökulísnum. Frá þeim streyma gufur, einkum k...
Menn greinir ekki á um hvort gler sígi eða ekki. Staðreynd málsins er sú að gler er undirkældur vökvi sem lætur undan þyngdarkraftinum með því að síga á löngum tíma. Frá þessu er bæði greint í svari undirritaðs við spurningunni Af hverju er gler gegnsætt og hvaða efni eru í gleri? á vísindavefnum og í svari við sp...
Gerður er greinarmunur á HF á gasformi og HF í vatnslausn. HF á gasformi kallast vetnisflúoríð og er táknað með HF(g) en vatnslausn af vetnisflúoríði kallast flússýra (einnig kallað flúorsýra eða flúrsýra) og er táknuð með HF(aq).
Algengasta form vetnisflúoríðs er 40% lausn af HF í vatni. Slíkar lausnir eru se...
Sigríður G. Suman er dósent við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Fræðasvið hennar er ólífræn efnafræði. Sigríður hefur unnið margvísleg verkefni í tengslum við efnahvatanir, málmdrifin lyf og virkjun smásameinda og umbreytingu þeirra í gagnleg efni.
Efnahvatanir eru efnahvörf sem eru nýtt til þess að búa ti...
Kvikasilfur er frumefni og tilheyrir hópi mjúkra málma. Eins og við á um flest önnur frumefni finnst það oftast sem efnasamband. Kvikasilfur er að finna í jarðskorpunni, í jarðvegi, bergi og vatni og jafnvel að einhverju leyti í andrúmsloftinu. Það kemur fyrir sem frumefnið kvikasilfur sem er fljótandi málmur eða ...
Eins og kemur fram í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Hvers vegna verðum við brún af því að vera mikið í sól? eru það útfjólubláir geislar sólarinnar sem virkja litfrumur í húðinni og valda því að húðin dekkist og verður sólbrún.
Útfjólublátt ljós er rafsegulgeislun með öldulengdina 100-400 nm ...
Hér er einnig svarað spurningunni:
Litli bróðir minn vildi fá að vita hvernig ljós kæmist út úr lokuðu herbergi þegar það er slökkt. Getið þið svarað?
Hugtakið ógegnsæ efni er notað um efni sem hleypa ekki ljósi í gegnum sig. Þau eiga það sameiginlegt að gleypa sýnilegt ljós að hluta til og endurkasta afgangin...
Árið 1979 birti Höskuldur Þráinsson prófessor grein í tímaritinu Íslenskt mál undir heitinu „Hvað merkir orðið bolli?“ Þar studdist hann við tilraun sem bandaríski málvísindamaðurinn William Labov hafði gert 1973. Hann gerði könnun með því að sýna þátttakendum 28 myndir af einhvers konar drykkjarílátum og spyrja h...
Í heild er spurningin svona:Hvað er að frétta af ósonlaginu núna, þynning þess og göt voru mikið í umræðunni fyrir einhverjum árum en lítið heyrist núna. Hver er staðan? Hefur það jafnað sig?
Í stuttu máli hefur þróunin líklega farið að sveigja í rétta átt síðasta áratuginn eða svo.
Óson er sameind úr þremu...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!