Engar fastar skilgreiningar eru til á þessu, að minnsta kosti ekki ennþá, en samkvæmt málskyni íslenskumælandi manna er fjall stærst, þá fell, síðan hóll, en þúfa minnst. Öll koma þessi orð fyrir í örnefnum, og rétt stærðaröð kemur til dæmis fram í örnefnunum Akrafjall, Búrfell, Orrustuhóll og Svalþúfa.
Örnefn...
Hér er einnig svarað spurningunni:Hvernig varð Pétursey til?
Stóri-Dímon í Rangárvallasýslu stendur í mynni Markarfljótsdals og rís upp af aurum Markarfljóts.
Stóri-Dímon er móbergseyja sem hefur myndast við eldgos undir jökli eða í sjó.
Stóri-Dímon er rúst af móbergseyju sömu gerðar og til dæmis Pétursey,...
Hér er einnig svör við spurningunum: Hvert er hæsta fjall í heimi? Hver eru hæstu fjöll í hverri heimsálfu?
Hæst fjall Noregs, sem jafnframt er hæsta fjall Norðurlandanna, kallast Galdhøppiggen og er 2470 metra hátt. Fjallið er á svæði sem kallast Jötunheimar og eru næstu bæir við það Sandane og Nordfjordeild í u...
Hæsta fjall Rússlands heitir Elbrus (á rússnesku Gora El’brus) og er það í Kákasusfjallgarðinum, nálægt landamærum Georgíu. Tindar þess eru tveir, hinn vestari og hærri er 5.642 metrar á hæð en sá eystri 5.621 metri á hæð. Elbrus er jafnframt hæsta fjall Evrópu, 835 metrum hærra en Mt. Blanc sem lengi vel var hæst...
Ein sjö Helgafell eru til í landinu:Suðaustur af Hafnarfirði, klettótt og bratt á flesta vegu.
Í Mosfellssveit, fjall og bær.
Á Þórsnesi á Snæfellsnesi, ávalt að sunnan og vestan en mjög þverhnípt að norðan og austan. Einnig samnefndur kirkjustaður.
Hátt fjall yst sunnan Dýrafjarðar.
Fell í Strandasýslu vestan...
„Fjallið“ Paramount er auðvitað þekktast sem merki Paramount Pictures. Engar heimildir styðja það að Paramount sé raunverulegt fjall en fólk hefur líkt því við ýmis fjöll víða um heim.
Fjallið Artesanraju í Perú er þekkt sem fyrirmynd Paramount-merkisins enda eru þau mjög lík, en þó ekki nákvæmlega eins.
...
Örnefnið Hestur er víða til á Íslandi, sem bæjarnafn, fjallsheiti og heiti á klettum, hólum og hæðum. Fjórir bæir á landinu heita Hestur. Einn er í Grímsnesi í Árnessýslu, annar í Andakíl í Borgarfirði og tveir á Vestfjörðum, í Önundarfirði og við Hestfjörð í Ísafjarðardjúpi. Allir standa bæir þessir undir fjöllum...
Upphafleg spurning var sem hér segir:Við hvað er miðað þegar sagt er að Ólympsfjall á Mars sé hæsta fjall sólkerfisins, þar sem ekki er hægt að miða við hæð yfir sjávarmáli?Það er alveg rétt að við getum ekki miðað hæð fjalla og annarra jarðfræðilegra fyrirbæra á öðrum reikistjörnum sólkerfisins við sjávarmál, ein...
Hestfjall dregur líklega nafn sitt af lögun, það er eins og liggjandi hestur til að sjá. Efst á því heita Hesteyru. Hitt er svo annað mál að Hestfjall var notað til hrossabeitar frá Skálholtsstað áður fyrr en það kemur nafngiftinni sennilega ekki við.
Hestur og Hestfjall í Grímsneshreppi í baksýn.
Nokkur önnur ...
Eins og fram kemur í svari Vísindavefsins við spurningunni: Hvert er stærsta eldfjall í heimi? er talsverður munur á því hvort miðað sé við hæð fjalla frá sjávarmáli eða frá fjallsrótum. Það fjall sem gnæfir hæst yfir sjávarmáli er án efa Everestfjall sem tilheyrir Himalajafjallgarðinum, en þar er einnig er að fin...
Þetta er í rauninni einfalt reiknisdæmi.
Þvermál jarðar við miðbaug er 12.756 km en 12.713 km við pólana, eins og fjallað er um í svari Vísindavefsins við spurningunni Hvað er jörðin þykk?
Everest, hæsta fjall jarðar, rís 8,848 km yfir sjávarmál. Mesta sjávardýpi er hins vegar í Mariane djúpsjávarrennunni ...
Eiríksjökull er hæsta fjall Vesturlands, 1675 m hátt.
Eiríksjökull þykir með fallegri fjöllum á Íslandi. Fjallið er móbergsstapi sem þýðir að það hefur myndast við eldgos undir jökli sem náði að bræða sig í gegnum ísinn, þannig að hraun runnu og mynduðu dyngjuna sem jökullinn hylur. Hægt er að lesa meira um m...
Hvolsfjall er móbergsfjall eins og flest fjöll á þessu svæði. Sennilega er það rúst af fornri eldstöð sem jöklar hafa sorfið ofan af, líkt og til dæmis Dyrhólaey, því klettarnir við Þinghól eru bólstraberg en ofan við kirkjuna þursaberg. Ofan á fjallinu eru grettistök, borin þangað af jöklum.
Hvolsfjall er fyrir...
Fjöll eru ekki það fyrsta sem kemur upp í huga flestra þegar Holland er til umræðu, enda er landið afar láglent og flatt. Í raun er um 25% landsvæðis í Hollandi undir sjávarmáli og um helmingur landsins er undir einum metra yfir sjávarmáli. Landið er þó ekki alveg marflatt, í suður- og austurhluta þess rís land að...
Stærsti gígur á reikistjörnunni Mars nefnist Hellas-dældin. Hann er um 2000 km í þvermál og rúmlega 7 km djúpur. Gígurinn er því næstum helmingur af stærð Bandaríkjanna!
Mesta dýpi gígsins er líklega níu km undir meðalhæð yfirborðsins og hann er því lægsti staður Mars. Gígurinn liggur á suðurhveli reikistjörnu...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!