Bólur myndast þegar fitukirtlar í húðinni stækka eins og lesa má um í svari við spurningunni Af hverju fær fólk bólur? Þar segir meðal annars:
Þegar fitukirtlar í andliti stækka vegna uppsafnaðrar húðfitu myndast fílapenslar. Þar sem sumar bakteríur nærast á húðfitu geta fílapenslar orðið að bólum og jafnvel kýlu...
Margir hafa sent inn spurningu um bólur. Aðrir spyrjendur eru Sigrún Óskarsdóttir, Berglind Ýr Jónasdóttir, Anna Hjörleifsdóttir, Trausti Salvar Kristjánsson og Margrét Friðriksdóttir, auk fleiri spyrjenda.
Ein tegund kirtla í húðinni eru fitukirtlar. Í langflestum tilvikum er hver þeirra tengdur einum hársekk. Þ...
Á kynþroskaskeiðinu verða ákveðnar breytingar í húðinni, fitukirtlar stækka og starfsemi þeirra eykst. Í sumum tilfellum bólgna þeir ef ástandið er slæmt og er þá talað um að unglingurinn sé með gelgjubólur eða unglingabólur (e. acne).
Eins og annað í líkamanum ræðst gerð húðarinnar og eiginleikar hennar að mi...
Skilgreining á líffæri er:hlutur sem er samsettur úr tveim eða fleiri mismunandi tegundum vefja, hefur ákveðið hlutverk og þekkist á útliti eða lögun sinni.Húðin er gerð úr mismunandi vefjum og hefur ákveðið hlutverk og þekkist vel á útliti sínu. Hún er eitt stærsta líffæri líkamans, að minnsta kosti hvað varðar y...
Húðin er úr nokkrum mismunandi vefjum. Yst er þunnt hornlag sem er að mestu gert úr þekjuvefsfrumum.
Frumurnar eru dauðar yst á hornlaginu en dýpra eru þær lifandi og skipta sér stöðugt og endurnýja þannig ysta lagið. Húðfruma lifir að meðaltali í 20-50 daga.
Hornlagið gegnir meðal annars því hlutverki að v...
Orðið bóla getur átt við ýmislegt, til dæmis við svokallaðar unglingabólur sem myndast þegar fitukirtlar í húðinni stækka. Um þannig bólur er hægt að lesa meira um í svari við spurningunni Af hverju fær fólk bólur?
Svo getur bóla líka átt við tískusveiflur eða slíkt, til dæmis þegar við segjum 'þetta er bara bó...
Húð okkar er gerð úr þremur lögum. Ysta lagið, það sem við horfum á, nefnist húðþekja (e. epidermis), þar fyrir innan er leðurhúðin (e. dermis) og innsta lagið nefnist undirhúð (e. subcutaneous layer). Öll vinna þessi lög saman að því að halda húð okkur í góðu ástandi.
Eins og lesa má um í svari Stefáns B. S...
Hvarmabólga (e. blepharitis) er það þegar jaðrar augnlokanna bólgna. Hvarmabólga er líklega einn algengasti augnsjúkdómurinn á Íslandi en erfitt er að meta hlutfall fólks með hvarmabólgu þar sem sjúkdómurinn veldur oft litlum einkennum. Á hinn bóginn getur hann valdið einkennum sem eru afar óþægileg og hafa verule...
Eitt helsta einkennið sem skilur að spendýr og önnur hryggdýr er sá hæfileiki að geta alið ungviði sitt á næringarríkri mjólk sem framleidd er í spenum (e. mammary glands). Það er hins vegar afar erfitt að svara nákvæmlega spurningunni um hvernig spenarnir komu til í þróun þessa hóps dýra.
Ýmsar kenningar haf...
Húðin á okkur er tvískipt. Yst er yfirhúð (epidermis) og undir henni liggur leðurhúðin (dermis). Frumurnar sem eru yst í yfirhúðinni, í svokölluðu hornlagi, eru dauðar og flagna stöðugt af en dýpra í yfirhúðinni eru lifandi frumur sem skipta sér í sífellu og sjá til þess að ysta lagið sé í stöðugri endurnýjun.
...
Þurr húð er ekki endilega húðsjúkdómur en ástand húðarinnar einkennist af því að hún flagnar, oft með roða, ertingu og kláða. Þetta veldur mestum vandræðum á haustin og veturna. Húðþurrkur kemur yfirleitt fram í andliti, á höndum, handleggjum og fótum. Þegar verst lætur getur húðin líkst fiskhreistri (Ichtyosis). ...
Mikill munur er á eitlum og kirtlum, bæði hvað varðar gerð og hlutverk.
Kirtlar (e. glands) eru úr kirtilvef og skiptast í inn- og útkirtla (e. endocrine og exocrine). Báðar gerðir gegna því hlutverki að framleiða eitt eða fleiri efni og seyta því eða þeim síðan frá sér.
Frá útkirtlum liggja rásir eða gö...
Út frá líffræðilegu sjónarmiði er megin tilgangur brjósta að framleiða mjólk fyrir afkvæmi þó þróun brjósta geti átt sér fleiri skýringar eins og nánar verður vikið að hér á eftir. Orðið kynfæri er aftur á móti samheiti fyrir æxlunarfæri eða getnaðarfæri samkvæmt Íslenskri orðabók (2002). Brjóst eru því ekki hluti...
Vísindavefurinn hefur fengið töluvert af spurningum sem tengjast kynþroska á einn eða annan hátt. Til dæmis:
Af hverju fær maður hár á kynfærin?
Hvers vegna vaxa punghárin?
Fara stelpur í mútur?
Getur röddin í stelpum breyst?
Hvenær fara strákar í mútur?
Breytist hárvöxtur á leggjum ungra kvenna við kynþros...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!