Til úlfalda teljast tvær núlifandi tegundir, önnur nefnist kameldýr (Camelus bactrianus) og hefur tvo hnúða á baki og hin nefnist drómedari (Camelus dromedarius) og er með einn hnúð á baki.
Upprunaleg heimkynni drómedara eru í Afríku en þar finnast þeir ekki villtir lengur heldur aðeins tamin dýr. Í dag lifa t...
Við höfum svarað nokkrum spurningum um ropa, að vísu fyrst og fremst í mönnum. Af þeim má þó ráða að mörg dýr muni líka ropa af sömu ástæðum og menn gera það.
Til að lesa um þetta má smella á efnisorðið ropi sem fylgir svarinu....
Í svari við spurningunni Hversu margar tegundir af dýrum eru í útrýmingarhættu í dag og af hverju? er skýrt út hvernig alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin Union for Conservation of Nature (IUCN) flokka dýrategundir eftir því hversu mikil hætta er á að þær deyi út í nánustu framtíð. Árið 2004 var listi IUCN yfir útda...
Það dýr sem gefur frá sér hæstu hljóðin er steypireyðurinn (Balaenoptera musculus) sem er jafnframt stærsta dýr jarðarinnar. Þegar tarfarnir eru í makaleit mynda þeir lágtíðni hljóð sem mannseyrað greinir ekki en þau hafa mælst allt að 188 desibel.
Vísindamenn telja að baul tarfanna sé liður í makaleit þeirra...
Líffræðingar hafa haft þann háttinn að flokka dýrategundir í útrýmingarhættu í þrjá flokka eftir því hversu mikil hætta er á því að þær deyi út í nánustu framtíð.
Flokkarnir eru þessir:
Dýr í mikilli útrýmingarhættu (e. critically endangered). Helmingslíkur eru á því að dýr sem lenda í þessum flokki verði hor...
Dýrum (Animalia) er skipt upp í rúmlega þrjátíu fylkingar. Munur er á mismunandi flokkun hinna ýmsu flokkunarfræðinga. Í þessu svari eru þær 33 talsins. Til að átta sig á skiptingu dýra þá eru öll dýr flokkuð í ríki dýra og síðan skipt niður í fylkingar. Margar þeirra innihalda tegundir sem flestir hafa ekki heyrt...
Í stað þess að tala um ‘heitt’ eða ‘kalt blóð’ nota líffræðingar hugtökin jafnheitt blóð (e. endothermic) og misheitt (e. exothermic). Um dýr sem hafa jafnheitt blóð gildir að mjög litlar sveiflur verða á líkamshita þeirra. Þetta á til að mynda við um menn. Hitasveiflur hjá dýrum með misheitt blóð eru hins vegar...
Já, til er dýr sem kallast lígur. Lígur er blendingur, afkvæmi karlljóns og tígrisynju. Afkvæmi ljónynju og karltígurs kallast síðan lígon. Ólíkt flestum blendingum annarra dýrategunda eru kvendýr þessara blendinga stundum frjó.
Nánar má lesa um blendinga í svari Jóns Más Halldórssonar við spurningunni Hefur t...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Hvað þurfa dýr að búa lengi í landinu til þess að kallast íslensk eins og til dæmis íslenska landnámshænan eða íslenski hundurinn?
Spurningin er einföld en ekki er til augljóst eða einfalt svar við henni sem á við um öll dýr sem búa á Íslandi. Til einföldunar gæti al...
Spurningin hljóðaði upprunalega svona:Er munur á því að segjast slátra dýri eða lóga því? Með öðrum orðum nýtir maður dýr til matar sem hefur verið "lógað"?Sögnin slátra er einkum notuð um að fella dýr sem hafa á til matar. Dýrin eru þá aflífuð og hlutuð sundur í hæfilega skammta og seld í matvöruverslunum. Slátr...
Orðið argur hefur fleiri en eina merkingu en ein þeirra er ‛ragur, huglaus’. Í eldra máli var einnig notað lýsingarorðið óargur í merkingunni ‛óragur, djarfur’. Lýsingarorðið óarga, sem beygist eftir veikri beygingu, var einnig notað í eldra máli í merkingunni ‛villtur, grimmur’. Í samsetningunni...
Orðið tuska merkir ‘efnis- eða pappírspjatla’. Tuskudýr er leikfang, bangsi eða annað dýr ætlað börnum, búið til úr efni. Hugsanlega er það innflutt frá Danmörku en þar heitir slíkt dýr tøjdyr. Í þýsku heitir slíkt dýr Stofftier (Stoff ‘efni’). Einnig er talað um tuskudúkku ef hún er búin til úr efni, oft áður fyr...
Það er auðvitað vel hægt að tala við dýr en spyrjandi hefur sennilega í huga hvort að dýrin skilji það sem við segjum.
Við vitum flest að það er hægt að kenna sumum dýrum að bregðast við tali okkar á ákveðinn hátt. Hundar geta til dæmis sótt spýtuna sem við köstuðum þegar við segjum 'sæktu' og hlýðnir hundar se...
Hvort hvalir geti talist meindýr eða ekki fer eftir því hvaða skilning við leggjum í hugtakið meindýr.
Gömul skilgreining á meindýrum er eftirfarandi: dýr sem valda mönnum skaða á heimili, við vinnu eða á eigin skinni. Aðra og aðeins nánari skilgreiningu er að finna í reglugerð 350/2014 um meðferð varnarefna og...
Við þessari spurningu er sennilega ekkert eitt rétt svar. Tvær ástæður eru fyrir því, sé svarið eingöngu miðað við lengd fullvaxins dýrs. Önnur ástæðan er flokkunarfræðileg: Hvað er dýr? Hin varðar nákvæmni og viðmið í mælingum.
Í flokkunarfræði nútímans eru þeir einfrumungar sem áður töldust vera einfruma dýr,...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!