Orðatiltækið „ekki baun“ er gamalt í málinu. Það er þekkt úr gömlum rímum og eldra er sambandið e-ð dugir ekki meira en ein baun. Það kemur fyrir í Riddarasögum. Líkingin er dregin af því hversu smáar baunir eru. Yngra er að skeyta balanum aftan við. Það orð er valið annars vegar vegna þess hve lítið fer fyrir ein...
Hér er einnig svarað spurningu Jóns Viðars Baldurssonar og Arnars Skjaldarsonar, sama efnis.
Ekki er alveg ljóst hvers vegna Íslendingar völdu niðrunarorðin Bauni eða Baunverjar um Dani en helst er sú notkun tengd innflutningi á baunum til landsins frá Danmörku. Til dæmis tengir Ásgeir Blöndal Magnússon saman b...
Ólíkt dæmigerðum spendýrum þá eru eistu hana og annarra fugla ekki fyrir utan líkamsholið heldur inni í kviðarholinu fyrir framan nýrun. Út frá eistunum liggur sáðrás niður í þarfagang (lat. og e. cloaca) og berst sæðið þá leið inn í kvenfuglinn við æxlun. Nánar er fjallað um æxlun fugla í svörum sama höfundar við...
Við bendum lesendum á svar við spurningunni Hvers vegna poppar poppkorn?. Þar kemur meðal annars fram að það eru þrír eiginleikar poppmaísins sem gera það að verkum að hægt er að poppa hann: vatnið í korninu, sterkjan sem það inniheldur og harða hýðið utan um.
Allt eru þetta eiginleikar sem eru misjafnir frá ei...
Kjúklingabaunir, sem einnig eru nefndar kíkertur á íslensku, eru fræ af runnanum Cicer arietinum. Hér til hliðar sést mynd af runnanum og fræjunum. Rómverjar kölluðu fræ eða baun runnans cicer og af því heiti á nafn rómverska stjórnmálamannsins og mælskusnillingsins Ciceros að vera dregið. Sagan segir að einn forf...
Einn þeirra kveðlinga sem oft eru notaðir sem eftirmáli í lok ævintýra hljóðar svona:Köttur úti í mýri
setti upp á sér stýri
úti er ævintýriLokaþulur við íslensk ævintýri eru fjölbreytilegar og oft koma sömu hendingarnar fyrir í mismunandi samböndum, þar á meðal þessar. Dæmi um slíkar þulur má finna í þjóðsagnas...
Orðið jólagrautur þýðir í munni Íslendinga á 20. öld þykkur hrísgrjónamjólkurgrautur með rúsínum. Grautur af því tagi verður reyndar ekki algengur hér fyrr en upp úr aldamótum 1900 en áður hafði jólagrauturinn oftast verið úr bygggrjónum, mjólk og rúsínum. Hrísgrjónagrauturinn er borinn fram með kanelsykri og rjóm...
Bæði heilaköngull og heiladingull eru innkirtlar og framleiða því hormón.
Heilaköngull (e. pineal gland, lat. epiphysis) er lítið líffæri, um 1 cm á lengd, sem er í laginu eins og furuköngull. Það er staðsett rétt fyrir ofan miðheilann og fyrir framan litla heilann. Hlutverk heilaköngulsins er að mynda og seyt...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:Talað er um lífverur sem stökkbreytast með tíð og tíma eftir því hvað stökkbreytingin er hentug hverjum stað fyrir sig. Hvað tekur eiginlega langan tíma fyrir lífverur að stökkbreytast eða þróast, eru það áratugir, hundruðir, þúsundir eða miljón ár?
Stökkbreytingar eru hráe...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!