Hin upprunalegu íslensku tré, ilmbjörkin (Betula pubescens) og ilmreynir (Sorbus aucuparia), verða ekki mjög gömul miðað við fjölmargar erlendrar trjátegundir. Sennilega verða þau vart meira en 80 ára gömul. Því má ætla að innfluttar trjátegundir sem gróðursettar voru á 19. öld séu elstu tré landsins.
Elsta tr...
Með verðbótum er átt við að reynt er að taka tillit til breytinga á verðlagi þegar fjárupphæðir eru reiknaðar og bæta þeim sem á að fá fé verðlagsbreytingu þannig að hann geti keypt það sama fyrir féð með verðbótum og hann hefði getað keypt fyrir féð án verðbóta ef verðlag hefði ekkert breyst. Breytingar á verðlag...
Menn vita yfirleitt ekki nákvæmlega hversu margar kindur eru á landinu eða á tilteknum svæðum á sumrin. Fjöldinn breytist um sauðburðinn með hverju nýju lambi og síðan með náttúrulegum afföllum. Þess vegna er siður að miða tölur um sauðfé við það hversu margar ær eru settar á á haustin en af því ræðst til dæmis st...
Óheimilt er samkvæmt íslenskum lögum að eiga barn með bróður sínum. Samkvæmt 3. mgr. 200. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 varðar samræði eða önnur kynferðismök milli systkina allt að fjögurra ára fangelsi.
Samkvæmt lögum um tæknifrjóvgun nr. 55/1966 væri tæknifrjóvgun einnig óheimil í tilvikum systkina,...
Meðgöngutími háhyrninga er um 16-17 mánuðir og telst hann vera einn sá lengsti meðal hvala. Afar lítið er vitað um æxlunarhætti háhyrninga en þó er vitað að kýrnar bera ekki kálfa fyrr en þær eru orðnar 14 til 15 ára gamlar en háhyrningar geta orðið gamlir.
Við burð er kálfurinn tveir og hálfur metri á lengd...
„Ég skal drekka hvern einasta dropa af olíu sem kemur upp úr jörðinni hérna“ er haft eftir breskum jarðfræðingi sem var að kortleggja í Mið-Austurlöndum um aldamótin 1900. Sýnilega sá hann ekki fyrir þær ótrúlegu olíulindir sem þar hafa fundist síðan, enda voru engin merki um þær á yfirborðinu.
Í Írak (þá Mesó...
Sú rækjutegund sem lifir hér við land kallast nú til dags aðeins rækja en til er eldra heitið stóri kampalampi (lat. Pandalus borealis). Rækjan er dæmigerð kaldsjávartegund og ein af þeim rúmlega 50 tegundum sem tilheyra ættinni Pandalidea. Pandalus borealis er langmest veidda kaldsjávarrækjutegund í heimi.
Teg...
Nýlegar rannsóknir benda til að 160 manns sé nægilegur fjöldi til að viðhalda genamengi mannsins á viðunandi hátt. Hins vegar mætti jafnvel helminga þá tölu ef einhverskonar félagsleg stýring yrði viðhöfð.
Mannfræðingurinn John Moore í Háskólanum í Flórída rannsakaði þetta sem hluta af sameiginlegu verkefni með...
Á Íslandi eru tvær tegundir af uglum. Brandugla er eina uglutegundin sem verpir hér á landi að staðaldri en snæugla er flækingsfugl hér en verpir þó stundum á Íslandi.
Branduglur (Asio flammeus) eru 37-39 cm að lengd og að meðaltali um 320 g að þyngd. Stofninn er lítill, líklega ekki nema 100-200 varppör en 200...
Demantar eru hreint kolefni rétt eins og grafít þó þessi tvö efni séu mjög ólík bæði í útliti og eiginleikum. Demantar hafa myndast í möttli jarðar á 120-200 km dýpi. Á þessu dýpi getur efni sem inniheldur kolefni verið bráðið en við afar sérstakar aðstæður, mjög mikinn þrýsting eða 45-60 kílóbör og hita á bilinu...
Skjaldbökur eru afar frumstæð skriðdýr af ættbálknum Chelonia. Helsta einkenni þeirra er skjöldurinn sem umlykur skrokkinn og geta þær dregið bæði fætur og höfuð inn undir hann ef hætta steðjar að.
Fæðuval skjaldbaka er nokkuð fjölbreytilegt. Þar sem þær eru tannlausar, og hafa sennilega verið það í 150 milljó...
Himalajafjöll eru fjallgarður í Asíu sem liggur í austur-vestur stefnu og aðskilur Indlandsskaga frá tíbetsku-hásléttunni. Fjallgarðurinn nær yfir sex þjóðríki; Bútan, Kína, Indland, Nepal, Pakistan og Afganistan. Orðið 'himalaja' kemur úr sanskrít og þýðir 'hima' snjór og 'ālaya' híbýli.
Hluti Himalajaf...
Stutta svarið við þessari spurningu er einfaldlega „já“.
Krækiber eru ber plöntutegundar sem kallast krækilyng (Empetrum nigrum) en það er útbreitt um allt norðurheimskautið, aðallega fyrir norðan 60. breiddargráðu. Krækilyng finnst þó einnig á hálendum svæðum sunnar á jörðinni. Fræ berjanna berast auðveldlega...
Í Himalajafjallgarðinum eru níu af tíu hæstu tindum heims. Everesttindur er sá allra hæsti, 8850 metrar á hæð. Í fjallgarðinum eru rúmlega 110 tindar hærri en 7300 metrar og um 200 rísa yfir 6000 metra. Að auki eru mörg hundruð lægri tindar. Himalajafjallgaðurinn er því talinn vera hæsti fjallgarður heims. Heitið ...
Skriðdýr er einn af fimm hópum hryggdýra. Hinir eru spendýr, fuglar, froskdýr og fiskar. Skriðdýr eiga margt sameiginlegt með öðrum hryggdýrum. Þróunarlega má skilgreina skriðdýr sem einhvers konar millistig milli froskdýra annars vegar og spendýra og fugla hins vegar enda þróuðust síðarnefndu hóparnir frá skriðd...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!