Meirihluti þeirra regndropa sem falla til jarðar á Íslandi er ískristallar sem hafa bráðnað á leiðinni til jarðar. Vissulega eru ský við Ísland oft hlýrri en frostmark, en það rignir ekki teljandi úr þeim. Í hitabeltinu er aftur á móti algengt að regndropar myndist án þess að vatnið frjósi fyrst í ískristöllum. Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
- Af hverju myndast ský og af hverju falla þau ekki til jarðar?
- Af hverju rignir, hvaðan kemur rigningin og hvernig myndast hún?
- Getur rignt úr tveimur skýjalögum á sama tíma?
- Hver er munurinn á hita- og kuldaskilum?