Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hafa norður og suðurpóllinn skipst á + og - á sögulegum tíma?

Leó Kristjánsson (1943-2020)

Áður en lengra er haldið er lesendum bent á að ágætt er að kynna sér svar sama höfundar við spurningunni Hvað eru pólskipti?

Það er ekki vitað til þess að pólskipti hafi orðið á sögulegum tíma, og ekki heldur frá lokum ísaldar fyrir um 12 þúsund árum. Það þekktasta af þeim mjög stuttu segulskeiðum sem nú er vitað um, fannst fyrst við mælingar á gosbergi í sunnanverðu Frakklandi 1967. Samkvæmt nýjustu niðurstöðum aldursgreininga stóð það skeið aðeins um eða innan við 2 þúsund ár fyrir um 40 þúsund árum. Óljósari gögn eru til um annað slíkt örstutt skeið fyrir um 32 þúsund árum.

Hér á Íslandi hefur ekki mikið verið leitað að gosmyndunum frá þessum tímabilum, en líklegt er þó að nokkur fell á Reykjanesskaganum austan Grindavíkur hafi myndast í öflugri eldgosahrinu á því fyrrnefnda. Í þeim fellum, meðal annars Siglubergshálsi og Skálamælifelli sitt hvoru megin við bæinn Ísólfsskála, hefur fundist með mælingum að það segulskaut sem nú er við norðurheimskautið lá þá 10° sunnan við miðbaug.

Mynd:

Höfundur

Leó Kristjánsson (1943-2020)

jarðeðlisfræðingur við Raunvísindastofnun

Útgáfudagur

14.9.2009

Spyrjandi

Daði Sverrisson

Tilvísun

Leó Kristjánsson (1943-2020). „Hafa norður og suðurpóllinn skipst á + og - á sögulegum tíma?“ Vísindavefurinn, 14. september 2009. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=23518.

Leó Kristjánsson (1943-2020). (2009, 14. september). Hafa norður og suðurpóllinn skipst á + og - á sögulegum tíma? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=23518

Leó Kristjánsson (1943-2020). „Hafa norður og suðurpóllinn skipst á + og - á sögulegum tíma?“ Vísindavefurinn. 14. sep. 2009. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=23518>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd: ...