Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hvenær rofnaði Madagaskar frá meginlandi Afríku?

Sigurður Steinþórsson

Í eina tíð var Madagaskar lítill hluti af stór-meginlandinu Pangæu (Al-landi), þar sem að því lágu Afríka, Suðurskautslandið og Indland. Á júratíma, fyrir um 160 milljón árum (m.á.), klofnaði Pangæa í tvö meginlönd, Gondwana í suðri og Lárasíu í norðri. Madagaskar ásamt aðlægum löndum var hluti af Gondwana, en snemma á krítartíma, fyrir um 125 m.á., klofnaði Indland ásamt Madagaskar frá Afríku og rak hratt til norðurs. Fyrir um 90 m.á. urðu löndin svo viðskila, Madagaskar sat eftir en Indland hélt áfram norðurför sinni.



Samkvæmt þessu rofnaði Madagaskar ásamt Indlandi frá meginlandi Afríku fyrir 125 m.á. og Madagaskar frá Indlandi fyrir 90 m.á. Þó eru ýmis jarð- og dýrafræðileg rök fyrir því að tengsl Madagaskar við Afríku hafi haldist að minnsta kosti þar til fyrir 50 milljónum ára, en þá rakst Indland á Asíu og Himalajafjöllin tóku að myndast.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:Mynd: Continental Drift Revision. Íslenskur texti settur inn af ritstjórn Vísindavefsins. Sótt 8. 11. 2010.

Höfundur

Sigurður Steinþórsson

prófessor emeritus

Útgáfudagur

25.11.2010

Spyrjandi

Ásta Rún, f. 1996

Tilvísun

Sigurður Steinþórsson. „Hvenær rofnaði Madagaskar frá meginlandi Afríku?“ Vísindavefurinn, 25. nóvember 2010. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=22576.

Sigurður Steinþórsson. (2010, 25. nóvember). Hvenær rofnaði Madagaskar frá meginlandi Afríku? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=22576

Sigurður Steinþórsson. „Hvenær rofnaði Madagaskar frá meginlandi Afríku?“ Vísindavefurinn. 25. nóv. 2010. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=22576>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvenær rofnaði Madagaskar frá meginlandi Afríku?
Í eina tíð var Madagaskar lítill hluti af stór-meginlandinu Pangæu (Al-landi), þar sem að því lágu Afríka, Suðurskautslandið og Indland. Á júratíma, fyrir um 160 milljón árum (m.á.), klofnaði Pangæa í tvö meginlönd, Gondwana í suðri og Lárasíu í norðri. Madagaskar ásamt aðlægum löndum var hluti af Gondwana, en snemma á krítartíma, fyrir um 125 m.á., klofnaði Indland ásamt Madagaskar frá Afríku og rak hratt til norðurs. Fyrir um 90 m.á. urðu löndin svo viðskila, Madagaskar sat eftir en Indland hélt áfram norðurför sinni.



Samkvæmt þessu rofnaði Madagaskar ásamt Indlandi frá meginlandi Afríku fyrir 125 m.á. og Madagaskar frá Indlandi fyrir 90 m.á. Þó eru ýmis jarð- og dýrafræðileg rök fyrir því að tengsl Madagaskar við Afríku hafi haldist að minnsta kosti þar til fyrir 50 milljónum ára, en þá rakst Indland á Asíu og Himalajafjöllin tóku að myndast.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:Mynd: Continental Drift Revision. Íslenskur texti settur inn af ritstjórn Vísindavefsins. Sótt 8. 11. 2010....