Spurning
Er endalaust pláss á Internetinu?
Spyrjandi
Kári Kolbeinsson
Svar
Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hvað er hægt að hlaða miklu efni niður af Netinu? þá er Internetið samsett úr litlum einingum sem mynda eins konar tölvunet. Í þessu tölvuneti eru vefþjónar (e. server) og venjulegar tölvur sem sækja efni á vefþjónana, svo sem vefsíður. Minnið á Netinu er sem sagt tölvurnar eða vefþjónarnir sem eru tengdir við það.Ekkert eiginlegt pláss er á Internetinu vegna þess að Netið er ekki geymslupláss heldur milligöngumaður milli vefþjóna og notanda Netsins. Netnotandi sem heimsækir vefsíðu skoðar þannig ekki efni sem er vistað á Netinu heldur efni sem er vistað á vefþjóni. Bæta má nýjum vefþjónum við Internetið og auka þannig geymslurými gagna sem hægt er að sækja á Netið.
Heimildir og frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvað er hægt að hlaða miklu efni niður af netinu? eftir Einar Örn Þorvaldsson
- Hvað eru margar vefsíður á netinu? eftir Einar Örn Þorvaldsson og Þorstein Vilhjálmsson
- Hver var fyrsta heimasíðan og hvar er hægt að finna hana? eftir Hauk Hannesson
- en.wikipedia.org - Server (computing). Sótt 8.6.2011.
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2011.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur8.6.2011
Efnisorð
Internetið Netið pláss geymslurými tölvunet vefþjónn tölva vefsíður minni
Tilvísun
Hákon Magnús Hjaltalín Þórsson, Kjartan Steinn Gunnarsson og Sverrir Arnórsson. „Er endalaust pláss á Internetinu?“. Vísindavefurinn 8.6.2011. http://visindavefur.is/?id=8547. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundar
Hákon Magnús Hjaltalín Þórssonnemandi í Háskóla unga fólksinsKjartan Steinn Gunnarssonnemandi í Háskóla unga fólksinsSverrir Arnórssonnemandi í Háskóla unga fólksins




