Spurning
Ég er sagður sestur í helgan stein. Hvar finn ég „helga steininn“!?
Spyrjandi
Þorvaldur S. Þorvaldsson
Svar
Í nútímamáli er merkingin í orðasambandinu að setjast í helgan stein að ‘draga sig í hlé, hætta að vinna’ og elsta dæmi Orðabókar Háskólans um þá notkun er frá fyrri hluta 19. aldar.Í fornu máli var merkingin að ‘ganga í klaustur’. Að vísu var lýsingarorðið heilagur ekki með í orðasambandinu í elsta máli heldur var talað um að setjast í stein eða ganga í stein. Steinn er þarna í merkingunni ‘klaustur’.

Sumir gætu eflaust hugsað sér að setjast í helgan stein í klaustrinu Monte Casino á Ítalíu. Það er meginklaustur Benediktínareglunnar og var á miðöldum í tengslum við íslensk klaustur sem tilheyrðu þeirri reglu.Undir lok Grettis sögu segir frá samtali þeirra hjóna Spesar og Þorsteins drómundar. Spes sagði: ,,Nú skulum við kaupa að þeim mönnum sem hagir eru á steinsmíði að þeir geri sinn stein hvoru okkru og mættum við svo bæta það sem við höfum brotið við guð.” Þarna á Spes við að láta reisa tvö klaustur. Síðar í sama kafla stendur: ,,Og lyktaði þessari smíð og á viðurkvæmilegum tíma og öllum hlutum tilbúnum skildu þau sína stundlega samvist að sjálfráði sínu að þau mættu því heldur njótandi verða heilagrar samvistu annars heims. Settist þá í sinn stein hvort þeirra og lifðu þau langan tíma sem guð vildi skipa og entu svo sína ævi“ (Grettis saga 92. kafli).
Í Flateyjarbók er þetta dæmi: ,,Konungrinn ... gékk í stein ok var einsetumaðr, meðan hann lifði“ (Fritzner, Johan III:539).
Elsta dæmi Orðabókar Háskólans um helgan stein er frá miðri 17. öld en einnig er í kvæði eftir Eggert Ólafsson frá miðri 18. öld talað um kyrran stein: ,,Nú er mér kært í kyrran stein / að setjast sælu hjá, / sú leiðin þókti bein.“
Heimildir
- Fritzner, Johan. Ordbog over Det gamle norske Sprog. III. Oslo 1954.
- Grettis saga. Í: Íslendinga sögur. Fyrra bindi. Svart á hvítu, Reykjavík 1985.
- Myndin er af heimasíðu Jóhönnu Klaus.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur10.6.2005
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Guðrún Kvaran. „Ég er sagður sestur í helgan stein. Hvar finn ég „helga steininn“!? “. Vísindavefurinn 10.6.2005. http://visindavefur.is/?id=5048. (Skoðað 18.5.2013).
Höfundur
Guðrún Kvaranprófessor





