Spurning
Hefur Pólstjarnan tungl? Ef já hversu mörg?
Spyrjandi
Arnar Birkir Hálfdánsson
Svar
Pólstjarnan er bjartasta stjarnan í stjörnumerkinu Litlibjörn en þó fjarri því að vera bjartasta stjarna næturhiminsins eins og margir halda. Sá heiður fellur hundastjörnunni Síríusi í Litlahundi í skaut. Raunar er Pólstjarnan 48. bjartasta stjarna næturhiminsins.Þegar betur er að gáð sést að Pólstjarnan hringsólar ekki ein síns liðs í kringum miðju Vetrarbrautarinnar líkt og sólina okkar, heldur fylgja henni tvær fylgistjörnur. Pólstjarnan er þar af leiðandi þrístirni. Ef þú átt stjörnusjónauka, eða hefur tök á að kíkja í gegnum einn slíkan, getur þú séð aðra fylgistjörnuna. Sú sjón er afar glæsileg en þá sést björt móðurstjarnan og við hlið hennar minni og daufari fylgistjarna.
Ekki er vitað til þess að Pólstjarnan hafi reikistjörnur en hver veit, kannski eigum við bara eftir að finna þær. Séu reikistjörnur til staðar umhverfis pólstjörnuna er að sjálfsögðu möguleiki á að þær hafi fylgitungl. Tunglin ganga þá í kringum reikistjörnurnar sjálfar en ekki Pólstjörnuna.
Til eru fleiri svör á Vísindavefnum um pólstjörnuna:
- Er eitthvað sérstakt við Pólstjörnuna?
- Hvernig er best að finna Pólstjörnuna? Í hvaða átt er Pólstjarnan frá Reykjavík og hve hátt er hún á himni?
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur3.10.2008
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
SHB. „Hefur Pólstjarnan tungl? Ef já hversu mörg?“. Vísindavefurinn 3.10.2008. http://visindavefur.is/?id=49416. (Skoðað 21.11.2009).
Höfundur
SHB



