Spurning

Hvað er Grænland stór hluti af jörðinni?

Spyrjandi

Jóhann Oddur, f. 1990
Einar Freyr, f. 1990

Svar

Hér er einnig svarað spurningunni:
Hve mörgum sinnum er Grænland stærra en Ísland?
Á landakortum virðist Grænland oft vera mjög stórt, jafnvel stærra en Ástalía sem þó er talin heimsálfa á meðan Grænland er eyja. Það kemur því kannski einhverjum á óvart að flatarmál Grænland er „aðeins“ 2.166.086 km2 sem er um 0,42% af heildarflatarmáli jarðar og 1,45% af þurrlendi jarðar.



Ástæðan fyrir því hversu stórt Grænland (og reyndar Ísland líka) virðist vera á kortum er sú að þegar hvelft yfirborð jarðar er yfirfært á sléttan flöt koma alltaf fram einhverjar skekkjur í flatarmáli, fjarlægðum eða hornum á kortinu. Algengt er að heimskort sýni svæðin lengst frá miðbaug óeðlilega stór, þar með talið Grænland. Hnattlíkön (og reyndar sum landakort) sýna hins vegar rétt stærðarhlutföll.

Þó Grænland sé ekki eins stórt og það er gjarnan sýnt á kortum þá er það gríðarstórt í samanburði við næsta nágranna þess í austri, litla Ísland. Flatarmál Íslands er um 103.000 km2 og því er Grænland rúmlega 21 sinni stærra.

Skoðið einnig: Mynd: Theodora.com

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur30.3.2005

Tilvísun

EDS. „Hvað er Grænland stór hluti af jörðinni?“. Vísindavefurinn 30.3.2005. http://visindavefur.is/?id=4860. (Skoðað 22.5.2013).

Höfundur

EDSlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Sofia Kovalevskaya
(1850-1891)
( Fyrri Næsti )

Rússneskur stærðfræðingur, ein fyrsta konan í Evrópu sem lauk doktorsprófi og varð fullgildur prófessor. Rannsakaði m.a. hlutafleiðujöfnur, sporbaugsheildi og hringa Satúrnusar.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans