Spurning

Hvað getur ísbjörn hlaupið hratt?

Spyrjandi

Þórhildur Vala Kjartansdóttir, f. 1996

Svar

Hvítabirnir (Ursus maritimus) eru ekki kunnir fyrir mikil langhlaup þar sem þeir ofhitna auðveldlega enda hafa þeir þykkan feld og eru oftast með þykkt fitulag að auki.

Ísbjörn á ferð.

Engu að síður geta þeir verið snarir í snúningum þegar svo ber undir, sérstaklega þegar þeir þurfa að taka stutta og kröftuga spretti að bráð. Vísindamenn telja að á stuttum vegalengdum nái ísbirnir allt að 40 - 50 kílómetra hraða á klukkustund. Á slíkum hraða ná þeir mönnum auðveldlega.

Frekara lesefni:
Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur25.9.2008

Efnisorð

ísbirnir hlaup hraði

Tilvísun

JMH. „Hvað getur ísbjörn hlaupið hratt?“. Vísindavefurinn 25.9.2008. http://visindavefur.is/?id=48446. (Skoðað 21.11.2009).

Höfundur

JMH



Leit