Spurning

Hvað er skortsala?

Spyrjandi

Hekla Hannibalsdóttir
Helgi Már

Svar

Skortsala er þýðing á enska hugtakinu 'short sale' eða 'short selling'. Með því er átt við að fengin er eign, til dæmis hlutabréf, að láni og hún síðan seld. Til að endurgreiða lánið þarf því að kaupa eignina aftur. Sá sem hefur gert þetta hefur tekið svokallaða skortstöðu (e. short position) í eigninni en með því er átt við að hann á minna en ekkert af viðkomandi eign, það er skuldar hana. Þegar viðkomandi endurgreiðir lánið þá er það kallað að losa sig úr skortstöðu. Andstaðan við skortstöðu er svokölluð gnóttstaða (e. long position).

Skortsala er meðal annars notuð þegar einhver vill veðja á að eign lækki í verði. Gangi það eftir þá getur viðkomandi keypt eignina til baka á lægra verði en hann seldi hana og þannig átt eitthvert fé afgangs þegar hann hefur losað sig úr skortstöðunni. Hér skiptir þó fleira máli, meðal annars sú þóknun sem greiða verður þeim sem lánar eignina og sú ávöxtun sem næst á féð sem fékkst með skortsölunni

Sjá einnig:
Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur26.6.2008

Tilvísun

Gylfi Magnússon. „Hvað er skortsala?“. Vísindavefurinn 26.6.2008. http://visindavefur.is/?id=47335. (Skoðað 9.9.2010).

Höfundur

Gylfi Magnússondósent í hagfræði við HÍ og viðskiptaráðherra



Leit