Tegundir útdauðar í náttúrunni (Extinct) | Forsenda | |
Geirfugl | Pinguinus impennis | Dó út 1844 |
Tegundir útdauðar sem varpfuglar í íslenskri náttúru (Extinct in wild) | ||
Haftyrðill | Alle alle | Hætti varpi á Íslandi um 1995 |
Keldusvín | Rallus aquaticus | Hætti varpi á Íslandi um 1970 |
Tegundir í bráðri hættu (Critically endangered) | ||
Brandönd | Tadorna tadorna | Lítill stofn, færri en 50 fuglar |
Fjöruspói | Numenius arquata | Lítill stofn, færri en 50 fuglar |
Gráspör | Passer domesticus | Lítill stofn, færri en 50 fuglar |
Skutulönd | Aythya ferina | Lítill stofn, færri en 50 fuglar |
Snæugla | Bubo scandiacus | Lítill stofn, færri en 50 fuglar |
Strandtittlingur | Anthus petrosus | Lítill stofn, færri en 50 fuglar |
Tegundir í hættu (Endangered) | ||
Haförn | Haliaeetus albicilla | Lítill stofn, færri en 250 fuglar |
Helsingi | Branta leucopsis | Lítill stofn, færri en 250 fuglar |
Húsönd | Bucephala islandica | Lítill stofn, takmörkuð útbreiðsla, samfelld fækkun, færri en 250 fuglar |
Skeiðönd | Anas clypeata | Lítill stofn, færri en 250 fuglar |
Þórshani | Phalaropus fulicarius | Lítill stofn, hefur fækkað, færri en 250 fuglar |
Tegundir í yfirvofandi hættu (Vulnerable) | ||
Brandugla | Asio flammeus | Lítill stofn, færri en 1.000 fuglar |
Fálki | Falco rusticolus | Lítill stofn, færri en 1.000 fuglar |
Flórgoði | Podiceps auritus | Lítill stofn, hefur fækkað, færri en 1.000 fuglar |
Gargönd | Anas strepera | Lítill stofn, færri en 1.000 fuglar |
Grágæs | Anser Anser | Hefur fækkað, meira en 20% fækkun á 10 árum |
Gulönd | Mergus merganser | Lítill stofn, færri en 1.000 fuglar |
Himbrimi | Gavia immer | Lítill stofn, færri en 1.000 fuglar |
Hrafn | Corvus corax | Hefur fækkað, meira en 20% fækkun á 10 árum |
Hrafnsönd | Melanitta nigra | Lítill stofn, færri en 1.000 fuglar |
Sjósvala | Oceanodroma leucorrhoa | Fáir varpstaðir |
Skrofa | Puffinus puffinus | Fáir varpstaðir |
Stormsvala | Hydrobates pelagicus | Fáir varpstaðir |
Stuttnefja | Uria lomvia | Hefur fækkað, meira en 20% fækkun á 10 árum |
Súla | Morus bassanus eða Sula bassana | Fáir varpstaðir |
Svartbakur | Larus marinus | Hefur fækkað mikið |
Tegundir í nokkurri hættu (Low risk) | ||
Grafönd | Anas acuta | Háð vernd |
Stormmáfur | Larus canus | Háður vernd |
Straumönd | Histrionicus histrionicus | Háð vernd, Ísland er eina varpland straumandar í Evrópu |
Þrjár tegundir hafa horfið úr íslenskri varpfuglafánu. Framræsla mýrlendis og tilkoma minksins hafa sennilega hrakið keldusvínið á brott af landinu. Haftyrðillinn hefur líklega flúið land vegna hlýnandi veðráttu en stórir stofnar hans eru á svæðum norðan af Íslandi, aðallega á Grænlandi og Svalbarða. Þessar tvær fuglategundirnar eru þær einu sem hafa hætt að verpa hér á landi en haftyrðillinn er algengur gestur á veturna og keldusvínið sést einstaka sinnum í vetrarfuglatalningu Náttúrufræðistofnunar. Geirfuglinn er þriðja tegundin sem horfið hefur úr íslenskri varpfuglafánu, en eins og flestum ætti að vera kunnugt um, dó hann út fyrir rúmlega einni og hálfri öld. Heimildir, frekari upplýsingar og myndir:
- Náttúrufræðistofnun, Válisti 2 - Fuglar. Á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar má nálgast upplýsingar um þennan válista
- Heimasíða IUCN
- Norwegian Cyberbirding
- www.fauna.is - myndabanki Jóns Baldurs Hlíðbergs
Fjölmörg svör er að finna á Vísindavefnum um fugla og mismunandi fuglategundir, þeirra á meðal nokkrar þeirra sem hér eru nefndar. Lesendur eru hvattir til að notfæra sér leitarvélina til að finna fleiri svör. Einnig má smella á efnisorðin neðan við svarið. Sérstaklega skal vakin athygli á fyrrnefndri vefsíðu, Myndabanka Jóns Baldurs Hlíðbergs, en þar má finna myndir af öllum þessum fuglategundum og fleiri til.