Spurning
Hvað hét Múhameð spámaður fullu nafni?
Spyrjandi
Dagmar Sigurðardóttir, f. 1989
Svar
Fullt nafn Múhameðs spámanns er Abu al-Qasim Muhammad ibn ‘Abd Allah ibn ‘Abd al-Mut talib ibn Hashim.Samkvæmt arabískri nafnvenju eru börn yfirleitt kennd við föður eins og á Íslandi. Ibn 'Umar merkir sonur 'Umars (Ómars) og bint 'Abbas er dóttir 'Abbasar. Ein af fáum undantekningum frá þessari venju er þegar talað er um Jesús sem Isa ibn Maryam eða Jesús sonur Maríu.
Einnig eru foreldrar oft nefndir eftir börnum sínum, yfirleitt elsta syninum. Faðir Da'uds (Davíðs) er þess vegna nefndur abu Da'ud og móðir Salims heitir umm Salim.
Eins og sést á nafni Múhameðs er hann sonur 'Abd Allah sem var sonur 'Abd al-Mut talib sem var sonur Hashim.

Múslimar vísa yfirleitt til spámannsins með nafninu Múhameð og láta stafina saas eða saws fylgja á eftir en þeir standa fyrir "Salla Allahu 'Alaihi Wa Sallam" sem merkir 'megi blessun og friður Allah fylgja honum'. Í enskum textum má stundum sjá stafina pbuh fylgja nafninu en þeir standa fyrir 'Peace be upon him'.
Í svonefndum Hadith-textum, sem eru frásagnir af lífi spámannsins, eru nokkur leiðbeiningaratriði um arabísk nöfn. Þar er nafnið Abdullah sem merkir 'þjónn guðs' vegsamað sem og nafn spámannsins, en Múhameð sem þýðir 'verður lofs' mun vera algengasta nafn múslima.
Samkvæmt Hadith ber að varast nafnið Maliku al-Amlak sem merkir 'konungur konunga' en slík nafngift er merki um hroka þar sem aðeins Allah má bera slíkt nafn.
Heimildir og mynd
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur26.2.2003
Flokkun:
Tilvísun
Jón Gunnar Þorsteinsson. „Hvað hét Múhameð spámaður fullu nafni?“. Vísindavefurinn 26.2.2003. http://visindavefur.is/?id=3175. (Skoðað 25.5.2013).
Höfundur
Jón Gunnar Þorsteinssonbókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins




