Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað þýðir nafnið Esja?

Guðrún Kvaran

Bærinn Esjuberg á Kjalarnesi er nefndur á nokkrum stöðum í Landnámu án þess að vikið sé að skýringu á nafninu. Þar bjó Örlygur Hrappsson sem kom til landsins frá Suðureyjum og settist að á Kjalarnesi.

Í Kjalnesingasögu er sagt frá því að írskir menn hafi komið á skipi í Leiruvog í Kollafirði. Meðal þeirra var kona, Esja að nafni, og var hún sögð ekkja og mjög auðug. Hún tók við bæ Örlygs og bjó að Esjubergi. Fjallsnafnið er þar ekki nefnt.

Vegna þessara sagna hefur sú tilgáta komið fram (W. Craigie) að nafnið Esja sé af keltneskum uppruna, dregið af Ésa eða Essa (sjá Hermann Pálsson: Keltar á Íslandi. Reykjavík 1996:170).

Flestir hafna þó þessari skýringu og telja að kvenmannsnafnið sé til orðið á eftir bæjarnafninu og fjallsheitinu. Helgi Guðmundsson (Um haf innan 1997:193-94) hefur bent á að í Lewis (Ljóðhúsum) í Suðureyjum séu varðveitt norræn örnefni í gelísku sem komi heim og saman við röð örnefna frá Akranesi og suður í Kollafjörð. Meðal þeirra er Esjufjall. Hugsanlega hafa örnefnin verið gefin um sama leyti á báðum stöðum og flust með norrænum mönnum vestur á bóginn.

Líklegasta skýringin á Esja er því sú að um norrænt nafn sé að ræða. Ásgeir Blöndal Magnússon (Íslensk orðsifjabók 1989:157) bendir á að í eldra máli hafi verið til orðið esja í merkingunni 'flögusteinn, tálgusteinn'. Í norsku er til esje í sömu merkingu. Af sama uppruna eru norska orðið esje í merkingunni 'eimyrja', sænska orðið ässja í sömu merkingu en einnig í merkingunni 'smiðjuafl' og síðastnefnda merkingin kemur fram í danska orðinu esse 'smiðjuafl'. Ásgeir Blöndal telur upphaflega merkingu orðsins esja í íslensku vera 'eldstæði' og 'steintegund höfð til eldstæðis- og ofngerðar'. Fjallsnafnið væri þá af sama stofni.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

7.3.2000

Spyrjandi

Jón Eiríksson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir nafnið Esja? “ Vísindavefurinn, 7. mars 2000. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=190.

Guðrún Kvaran. (2000, 7. mars). Hvað þýðir nafnið Esja? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=190

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir nafnið Esja? “ Vísindavefurinn. 7. mar. 2000. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=190>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...