Spurning
Hve margir blettatígrar eru á Íslandi?
Spyrjandi
Andri Helgason, f. 1988
Svar
Heimkynni blettatígursins (Acinonyx jubatus) eru aðallega í austan- og sunnanverðri Afríku, mest í Namibíu og á Serengeti-sléttunni í Tansaníu. Einhverjir blettatígrar eru á afmörkuðum svæðum í Íran og Afganistan.Sú var tíðin að blettatígra var að finna á Indlandi, í Mið-Austurlöndum og víða um Afríku. Hið asíska afbrigði blettatígursins er nú nánast útdautt og einnig hefur blettatígrum fækkað verulega í Afríku. Blettatígrar eru nú taldir meðal dýra í útrýmingarhættu og eru friðaðir um allan heim.
Blettatígrar eru í dýragörðum víða um heim. Slíkan dýragarð er þó ekki að finna á Íslandi og ekki eru blettatígrar taldir meðal villtra íslenskra spendýra. Því er líklega óhætt að fullyrða að enginn blettatígur sé á Íslandi.
Sjá einnig svar Elínar Elísabetar Torfadóttur við spurningunni Hversu hratt getur blettatígur (Cheetah) hlaupið?
Heimildir:
The Cat Survival Trust
Big Cats Online
Mynd: HB
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur6.10.2000
Flokkun:
Tilvísun
EMB. „Hve margir blettatígrar eru á Íslandi?“. Vísindavefurinn 6.10.2000. http://visindavefur.is/?id=975. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundur
EMBnýdoktor við Heimspekistofnun HÍ






