Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Af hverju er "etc." eitt orð en "et al." tvö orð, "et" er jú heilt orð úr latínu?

Guðrún Kvaran

Latneska orðið et 'og' er vissulega sameiginlegt báðum skammstöfununum etc. og et al. Hin fyrri stendur fyrir et cetera og er notuð í merkingunni 'og svo framvegis' (eiginleg merking 'og aðrir (hlutir)'). Að baki liggur latneska orðið caeterus sem oftast er notað í fleirtölu í merkingunni 'aðrir'. Hvorugkyn fleirtölu er caetera. Skammstöfunin varð mikið notuð í ýmsum málum og framburðurinn leiddi til þess að -ae- var skrifað -e-. Ýmist er þá skrifað fullum stöfum et cetera eða skammstafað etc.

Skammstöfunin et al. er notuð um tvennt. Annars vegar í merkingunni 'og aðrir, og fleiri' og liggur þá að baki í latínu et alii, alius merkir 'annar'. Hins vegar í merkingunni 'og annars staðar, og víðar' og þá liggur að baki latneska orðið alibi 'annars staðar'.

Rithætti skammstafananna ræður fyrst og fremst hefð. Orðið hefur ofan á að rita etc. í einu orði en et al. í tveimur og hefur máltilfinningin sjálfsagt haft þar eitthvað að segja og sömuleiðis að í þeim málum sem tekið hafa upp þessar skammstafanir eru þær tökuorð sem fengin eru að láni í heilu lagi. Það hefur hjálpað til við samræmda notkun.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

7.8.2007

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju er "etc." eitt orð en "et al." tvö orð, "et" er jú heilt orð úr latínu?“ Vísindavefurinn, 7. ágúst 2007. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=6744.

Guðrún Kvaran. (2007, 7. ágúst). Af hverju er "etc." eitt orð en "et al." tvö orð, "et" er jú heilt orð úr latínu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=6744

Guðrún Kvaran. „Af hverju er "etc." eitt orð en "et al." tvö orð, "et" er jú heilt orð úr latínu?“ Vísindavefurinn. 7. ágú. 2007. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=6744>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Af hverju er "etc." eitt orð en "et al." tvö orð, "et" er jú heilt orð úr latínu?
Latneska orðið et 'og' er vissulega sameiginlegt báðum skammstöfununum etc. og et al. Hin fyrri stendur fyrir et cetera og er notuð í merkingunni 'og svo framvegis' (eiginleg merking 'og aðrir (hlutir)'). Að baki liggur latneska orðið caeterus sem oftast er notað í fleirtölu í merkingunni 'aðrir'. Hvorugkyn fleirtölu er caetera. Skammstöfunin varð mikið notuð í ýmsum málum og framburðurinn leiddi til þess að -ae- var skrifað -e-. Ýmist er þá skrifað fullum stöfum et cetera eða skammstafað etc.

Skammstöfunin et al. er notuð um tvennt. Annars vegar í merkingunni 'og aðrir, og fleiri' og liggur þá að baki í latínu et alii, alius merkir 'annar'. Hins vegar í merkingunni 'og annars staðar, og víðar' og þá liggur að baki latneska orðið alibi 'annars staðar'.

Rithætti skammstafananna ræður fyrst og fremst hefð. Orðið hefur ofan á að rita etc. í einu orði en et al. í tveimur og hefur máltilfinningin sjálfsagt haft þar eitthvað að segja og sömuleiðis að í þeim málum sem tekið hafa upp þessar skammstafanir eru þær tökuorð sem fengin eru að láni í heilu lagi. Það hefur hjálpað til við samræmda notkun....